Fréttir

Þjónusta Grindavíkurbæjar skert næstu vikurnar
Sumaropnun er í íþróttamannvirkjum í Grindavík.
Laugardagur 25. júlí 2026 kl. 14:27

Þjónusta Grindavíkurbæjar skert næstu vikurnar

Íbúar og viðskiptavinir Grindavíkurbæjar mega búast við skertri þjónustu af hálfu bæjarfélagsins næstu vikurnar vegna sumarleyfa starfsfólks.

Lokað verður á bæjarskrifstofum Grindavíkur frá og með 25. júlí, en stefnt er að því að opna þær aftur mánudaginn 10. ágúst. Á meðan lokuninni stendur verður tekið við tölvupóstum á netfangið [email protected]. Erindum verður forgangsraðað og má almennt búast við að svör berist ekki fyrr en skrifstofurnar opna á ný, nema um brýn mál sé að ræða.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Sumaropnun verður í íþróttamannvirkjum bæjarins. Þau verða opin á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 16:00 til 21:00, auk þess sem opið verður á laugardögum milli kl. 12:00 og 17:00.

Erfitt getur verið að ná í bæjaryfirvöld vegna venjulegra erinda á þessum tíma, en daglega öryggis- og neyðarþjónustu mun ekkert reyna á. Neyðarvakt Slökkviliðs Grindavíkur verður með alveg óbreyttu sniði. Þá er sérstakt neyðarnúmer virkt hjá þjónustumiðstöð í síma 660 7343 ef upp koma bráðatilfelli sem þola enga bið, svo sem vegna bilana í vatns- eða fráveitu eða vegna tjóns á fasteignum.

Eignasalan
Eignasalan