DansKompaní skrifar sögu á Dance World Cup – 13 gullverðlaun
DansKompaní úr Reykjanesbæ náði einstökum árangri á Dance World Cup í ár og sneri heim með alls níu heimsmeistaratitla, fjögur silfurverðlaun, fimm bronsverðlaun og fjölmörg sæti meðal tíu efstu. Að auki hlaut skólinn fjóra eftirsótta Gala-titla, sem veittir eru þeim atriðum sem þykja skara fram úr sem „best of the best“ á mótinu.
Dance World Cup er eitt stærsta og öflugasta dansmót heims. Um 120.000 dansarar frá yfir 60 löndum taka þátt í forkeppnum um heim allan en 11.500 dansarar vinna sér inn keppnisrétt á úrslitamótinu sem haldið var í Dublin í ár. Árangur DansKompaní er því einstakur og staðfestir það öfluga starf sem unnið er í skólanum.
Markviss vinna skilar árangri
Æfingaferlið hófst í byrjun desember en þá undirbjó hópurinn sig fyrir forkeppnina sem haldin var í Borgarleikhúsinu í febrúar.
Þar tryggðu öll atriði skólans sér sæti í íslenska landsliðinu fyrir Dance World Cup. Nemendur stóðu sig afar vel í gegnum allt ferlið og sýndu bæði mikla fagmennsku og samheldni.
Foreldrahópurinn á einnig stóran þátt í velgengninni. Foreldrar sjá meðal annars um að panta búninga, smíða sviðsmuni og styðja við bakið á hópnum á fjölbreyttan hátt.
Mótið gekk vonum framar
Frábær stemning og öflug liðsheild einkenndi okkar hóp á mótinu í ár. DansKompaní raðaði inn heimsmeistaratitlum og verðlaunasætum í fjölmörgum flokkum og sýndi aftur og sannið að skólinn er meðal allra fremstu dansskóla heims.
Eitt eftirminnilegasta augnablik mótsins var þegar DansKompaní vann tvo heimsmeistaratitla með aðeins um fimm sekúndna millibili. Þar sem keppt var á fjórum sviðum samtímis fóru tvær verðlaunaafhendingar fram á sama tíma á stærstu sviðunum tveimur og fögnuðu íslensku keppendurnir heimsmeistaratitlum á báðum stöðum samtímis.
Einnig var ánægjulegt að vinna í flokkum sem eru meðal þeirra sterkustu á mótinu. Samheldnin innan hópsins og gleðin sem ríkti alla keppnisdagana standa þó upp úr sem stærsti sigurinn.
Gala-titlar – „Best of the Best“
DansKompaní hlaut fjóra Gala-titla:
Wonka’s Wonderland - Children Large Group Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta
Munchkins – Mini Large Group Song and dance. Danshöfundar: Helga Ásta og Laufey Soffía
Today is the Day - Senior small group Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta
Mr. & Mrs. Smith - Senior duet/trio Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta
Heimsmeistarar
Heimsmeistaratitla hlutu eftirfarandi atriði:
Wonka’s Wonderland - Children Large Group Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta
Munchkins – Mini Large Group Song and Dance. Danshöfundur: Helga Ásta og Laufey Soffía
FartParty! - Mini Small Group Song and Dance. Danshöfundur: Helga Ásta
Look – Children small group Commercial Danshöfundur: Helga Ásta
Mr. & Mrs. Smith - Senior duet/trio Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta
The Black Pearl - Senior Large Group Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta
Today is the Day - Senior Small Group Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta
Asylum – Junior Small Group Showstopper. Danshöfundur: Inga Sól
Class Clowns - Junior Small Group Commercial. Danshöfundur: Hrafnhildur Una
2. SÆTI
Bruce – Children Small Group Song and Dance. Danshöfundur: Laufey Soffía
Sanderson Sisters – Children duet/trio Showstopper. Danshöfundur: Laufey Soffía
Funhouse – Children Small Group Showstopper. Danshöfundur: Laufey Soffía
Captain Jack Sparrow – Senior solo Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta
3. SÆTI
Revolting Children - Children Large Group Song and Dance. Danshöfundur: Laufey Soffía
GAGA – Senior Large Group Commercial. Danshöfundur: Hrafnhildur Una
Music Box – Children solo Showstopper. Danshöfundur: Inga Sól
Requiem – Children solo Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta
Book of Mormon wife’s - Senior large Group Song and Dance. Danshöfundur: Laufey Soffía.
TOPP 10
4th Waitress - Children duet/trio Song and Dance. Danshöfundur: Hrafnhildur Una
4th Wonderland - Junior Large Group Song and Dance. Danshöfundur: Laufey Soffía
5th Joker - Junior Solo Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta
5th MJ - Senior Small group Commercial. Danshöfundur: Hrafnhildur Una
6th Tóti the Toothfairy - Senior Solo Song and Dance. Danshöfundur: Helga Ásta
6th The best of: FRIENDS - Junior Large Group Showstopper. Danshöfundur: Inga Sól
7th Journey - Children solo Song and Dance. Danshöfundur: Helga Ásta
8th Barbie - Mini solo Street Dance and Commercial. Danshöfundur: Hrafnhildur Una
8th Be our Guest - Children solo Song and Dance. Danshöfundur: Helga Ásta
8th Therapy - Junior duet/trio Song and Dance. Danshöfundur: Hrafnhildur Una
10th Lay it back - Mini duet/trio Street Dance and Commercial. Danshöfundur: Hrafnhildur Una






