Íþróttir

Spencer Svejcar semur við Njarðvík
Fimmtudagur 23. júlí 2026 kl. 09:39

Spencer Svejcar semur við Njarðvík

Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur samið við bandaríska og tékkneska bakvörðinn Spencer Svejcar fyrir komandi tímabil í Bónus-deild karla.

Svejcar, sem er 32 ára gamall, er með tvöfalt ríkisfang (Bandaríkin/Tékkland) og hefur meðal annars leikið með tékkneska A-landsliðinu. Hann kemur til Njarðvíkur frá spænska liðinu FC Cartagena Basketball þar sem hann lék síðast.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Rúnar Ingi, þjálfari Njarðvíkur, fagnar komu Svejcar og segir reynslu hans og karakter eiga eftir að reynast hópnum dýrmæta:

„Spencer er reynslumikill bakvörður sem mun styrkja bakvarðasveitina okkar til muna. Hann er frábær skotmaður en getur líka sett boltann í gólfið, keyrt á hringinn og búið til fyrir aðra. Reynsla hans og karakter mun vera frábær viðbót við hópinn og hlakka ég mikið til að sjá hann kveikja í netinu í IceMar-höllinni í vetur.“

Eignasalan
Eignasalan