Eignasalan
Eignasalan

Íþróttir

Sveindís skoraði í sögulegum sigri Angel City
Sveindís fagnar markinu. Mynd: Angel City
Mánudagur 20. júlí 2026 kl. 12:28

Sveindís skoraði í sögulegum sigri Angel City

Íslenska landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir innsiglaði 2-0 sigur Angel City gegn Chicago Stars í bandarísku NWSL-deildinni í knattspyrnu á laugardagskvöld. Sigurinn var sögulegur fyrir Angel City, en liðið hélt marki sínu hreinu í þriðja leiknum í röð sem er nýtt félagsmet. Þetta var jafnframt þriðji sigurleikur liðsins í röð.

Eftir markalausan fyrri hálfleik tók Angel City öll völd á vellinum. Liðið komst yfir á 53. mínútu þegar hin 21 árs gamla Maiara Niehues skoraði af öryggi úr vítaspyrnu sem dæmd var eftir langa VAR-skoðun. Þetta var sjötta mark Niehues á tímabilinu.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Angel City hélt áfram að sækja stíft og þegar átta mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma tryggði Sveindís Jane sigurinn. Eftir hraða skyndisókn fékk hún fullkomna sendingu frá Prisca Chilufya og skoraði af stuttu færi við hægri stöngina. Þetta var fimmta mark Sveindísar á tímabilinu. Skömmu áður hafði annað mark verið dæmt af Sveindísi vegna rangstöðu í aðdragandanum.

„Þetta mark var hundrað prósent Príscu að þakka,“ sagði Sveindís í samtali eftir leikinn og hrósaði samherja sínum fyrir sendinguna. Hún viðurkenndi að fyrri hálfleikurinn hefði ekki verið góður en liðið hefði sýnt mikinn karakter og aukið ákefðina í þeim síðari.

Eignasalan
Eignasalan