Íþróttir

Gaflarar fyrstu golfmeistarar Þróttar
Mánudagur 20. júlí 2026 kl. 11:04

Gaflarar fyrstu golfmeistarar Þróttar

Auðun og Gylfi klæddust appelsínugula jakkanum

Fyrsta golfmót Knattspyrnudeildar Þróttar Vogum fór fram á Kálfatjarnarvelli við frábærar aðstæður. Mótið heppnaðist einstaklega vel en alls tóku 20 lið þátt í leiknum í ár.

Það voru þeir Auðun Helgason, þjálfari meistaraflokks Njarðvíkur, og Gylfi Þór Gylfason, fyrrum formaður knattspyrnudeildar Njarðvíkur, sem skipuðu liðið Gaflarar. Þeir sýndu bestu taktana á vellinum, stóðu uppi sem sigurvegarar og geta með stolti kallað sig fyrstu golfmeistara Þróttar 2026.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Fyrir sigurinn fengu þeir ferðavinning, farandbikar og síðast en ekki síst hinn sérlega eftirsótta og glæsilega appelsínugula jakka, sem þeir klæddust við hátíðlega athöfn.

Fallegasti golfvöllur landsins

Knattspyrnudeild Þróttar sendir risastórar þakkir til Húbba og Karenar hjá Golfklúbbi Vatnsleysustrandar fyrir frábært samstarf og liðlegheit. Aðstandendur mótsins spöruðu ekki stóru orðin og sögðu einfaldlega: „Kálfatjarnarvöllur er fallegasti golfvöllur landsins!“

Mótsstjórinn, Heimir Bergmann, fékk sömuleiðis miklar þakkir fyrir mikla og óeigingjarna vinnu undanfarnar vikur við að láta mótið verða að veruleika.

Knattspyrnudeildin þakkar öllum þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem gáfu glæsilega vinninga og studdu við bakið á starfinu, sem og öllum keppendum fyrir þátttökuna. Miðað við velgengnina er ljóst að mótið er komið til að vera og kveðja Þróttarar með orðunum: „Sjáumst að ári! Áfram Þróttur!“

Eignasalan
Eignasalan