Argentískur landsliðsleikstjórnandi til liðs við Keflavík
Kvennalið Keflavíkur í körfuknattleik hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi tímabil, en félagið hefur samið við Amaiquen Siciliano.
Siciliano er argentískur landsliðsmaður sem spilar stöðu leikstjórnanda, en hún er einnig með ítalskt vegabréf. Hún kemur til Keflavíkur með dýrmæta reynslu úr evrópskum körfubolta, en hún hefur undanfarið leikið í næstefstu deildum á Ítalíu og Spáni.
Arnór, þjálfari Keflavíkurliðsins, bindur miklar vonir við komu Siciliano og er mikil eftirvænting innan herbúða Keflavíkur að sjá hana á parketinu á nýju tímabili í vetur.






