Ný og glæsileg áhorfendastúka vígð á Nesfiskvellinum
Víðir fagnar 90 ára afmæli með nýju mannvirki
Ný og glæsileg 320 sæta áhorfendastúka var formlega opnuð við Nesfiskvöllinn í Garði sl. föstudagskvöld við hátíðlega athöfn. Það var Hrönn Edvinsdóttir, heiðursfélagi Víðis, sem fékk það heiðursverkefni að klippa á borðann og opna stúkuna formlega.
Haukur Andrésson, forseti bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar, flutti ávarp við opnunina og fagnaði þessum merka áfanga, sem ber upp á sama ár og Knattspyrnufélagið Víðir fagnar 90 ára afmæli sínu.
„Þessi dagur er ekki bara tilefni til að fagna glæsilegu mannvirki. Hann er líka tilefni til að fagna því sem skiptir mestu máli – fólkinu sem stendur á bak við Víði og því öfluga samfélagi sem félagið hefur byggt upp í heila níu áratugi,“ sagði Haukur í ræðu sinni.

Meira en bara sæti fyrir áhorfendur
Haukur lagði áherslu á að undirstrika mikilvægi íþróttafélaga í samfélaginu og benti á að nýja stúkan væri tákn um metnað og framtíðarsýn í Suðurnesjabæ. Mannvirkið muni bæta upplifun jafnt leikmanna sem áhorfenda og styrkja þann góða anda sem ríkir á Nesfiskvellinum.
„Hér læra börn og ungmenni að bera virðingu fyrir samherjum og andstæðingum, vinna saman að sameiginlegum markmiðum og sýna seiglu þegar á móti blæs. Þetta eru lífsgildi sem nýtast ekki aðeins inni á vellinum heldur alla ævi,“ sagði Haukur.

Samvinna og eldmóður skóp áfangann
Verkefni sem þetta verða ekki til af sjálfu sér og færði Haukur öllum þeim sem komu að verkinu innilegar þakkir – þar á meðal Knattspyrnufélaginu Víði, sjálfboðaliðum, styrktaraðilum og Suðurnesjabæ.
Sérstakar þakkir fengu verktakar framkvæmdarinnar, þeir Bragi Guðmundsson og Gröfuþjónusta Tryggva Einars, fyrir vel unnið verk.
Að lokum óskaði Haukur Víðismönnum og samfélaginu öllu til hamingju með áfangann: „Ég vona að þessi stúka verði um ókomin ár vettvangur ótal gleðistunda, eftirminnilegra sigra, spennandi leikja og jafnvel nokkurra taugatrekkjandi lokamínútna.“
Þess má til gamans geta að 40 ár eru liðin frá því fyrsta stúkan var reist við Víðisvöllinn. Hún var úr tré og hafði áður þjónað sem áhorfendapallar í útileikhúsi á höfuðborgarsvæðinu. Í gegnum árin og áratugina hafa trépallar þjónað sem stúka við knattspyrnuvöll Víðismanna en nú er komið mannvirki sem er mun traustara og vonandi endingarbetra en forverar þess.













