Eignasalan
Eignasalan

Fréttir

Eldur í Fiskmarkaði Suðurnesja í Sandgerði
Frá vettvangi slökkvistarfs. Mynd: Brunavarnir Suðurnesja
Sunnudagur 19. júlí 2026 kl. 13:25

Eldur í Fiskmarkaði Suðurnesja í Sandgerði

Talsverður viðbúnaður var hjá Brunavörnum Suðurnesja á föstudagskvöld þegar tilkynning barst um eld í Fiskmarkaði Suðurnesja í Sandgerði.

Útkallið barst slökkviliðinu klukkan 21:59. Þegar fyrstu bílar komu á vettvang lagði dökkan reyk út úr húsinu og var mikill reykur innandyra.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Slökkviliðsmönnum gekk greiðlega að komast inn í húsnæðið og staðsetja eldinn. Í ljós kom að kviknað hafði í rafmagnstöflu. Eldurinn sjálfur var ekki mikill og gekk fljótt og vel að slökkva hann.

Hins vegar reyndist vinna við reykræstingu hússins tímafrek þar sem reykurinn var mikill og þykkur. Aðgerðum slökkviliðsins á vettvangi lauk endanlega um hálftíma fyrir miðnætti, eða klukkan 23:47.

Eignasalan
Eignasalan