Eignasalan
Eignasalan

Fréttir

Áform um lokaða búsetu fyrir hælisleitendur í Rockville
Séð yfir svæðið sem kennt er við ratsjárstöðina Rockville. VF/hilmarbragi
Fimmtudagur 16. júlí 2026 kl. 16:13

Áform um lokaða búsetu fyrir hælisleitendur í Rockville

Skiptar skoðanir í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar

Miklar umræður sköpuðust á fundi bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar í gær vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á lokaðri brottfararmiðstöð fyrir hælisleitendur á Rockville-svæðinu á Miðnesheiði. Lagt var fram erindi þar sem óskað er eftir afnotum af svæðinu ásamt vilyrði fyrir breyttu deiliskipulagi, en málinu var vísað til hraðrar greiningarvinnu í bæjarráði vegna mjög skamms frests.

Um er að ræða áform um uppsetningu á girtu og lokuðu úrræði á Rockville-svæðinu, þar sem áður var starfrækt ratsjárstöð bandaríska hersins. Rockville er í dag að mestu í niðurníðslu og þykir mörgum því tækifæri fólgið í því að koma þar af stað starfsemi, á meðan aðrir lýsa yfir áhyggjum af eðli verkefnisins.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Rockville betri kostur en íbúabyggð: „Hafnað af Reykjanesbæ“

Anton Kristinn Guðmundsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins (B-lista), ræddi málið ítarlega á fundinum. Hann benti á að borist hefðu veður af því að nágrannasveitarfélagið Reykjanesbær vildi ekki sjá þessa starfsemi innan sinna marka, en einhvers staðar yrði hún þó að vera.

Anton sagðist sjálfur ekki vera spenntur fyrir því að fá slíka starfsemi inn í sveitarfélagið en fagnaði því að ef af yrði væri horft til Rockville sem yrði girt og lokað svæði uppi í heiði en ekki í námunda við íbúabyggð. Hann rifjaði upp slæma reynslu frá því þegar Guðmundur Ingi Guðbrandsson var ráðherra á sínum tíma og til stóð að hýsa flóttamenn í Garðinum. Sú staðsetning hefði valdið áreiti og ónæði fyrir sundgesti, á bæjarskrifstofunum og meðal íbúa almennt. Friðsælt samfélag eins og Suðurnesjabær hefði lítið við slíkt að gera og því væri Rockville, fjarri fjölskyldufólki, mun hentugri staðsetning. Hann hvatti til þess að málið yrði unnið hratt og örugglega í samstarfi við þá sem standa að verkefninu.

Daði Bergþórsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins (M-lista), tók undir það sjónarmið að Rockville væri ákaflega hentug staðsetning undir þessa starfsemi ef á annað borð ætti að leyfa hana í sveitarfélaginu, jafnvel þótt hann væri persónulega ekki „hoppandi kátur“ yfir verkefninu sjálfu.

Tugir milljóna í spilinu en skipulagið flókið

Magnús Sigfús Magnússon (B-listi) benti á að í þessu gætu falist mikil tækifæri fyrir Suðurnesjabæ ef rétt væri á málum haldið. Hann nefndi að samkvæmt kynningu sem bæjarfulltrúar fengu frá þeim hópi sem hyggst bjóða í verkið standi til að nýta nyrsta og austasta hluta svæðisins. Það myndi þýða að meirihluti Rockville-svæðisins yrði áfram laus og tilbúinn undir aðra uppbyggingu og atvinnustarfsemi í framtíðinni.

Magnús viðurkenndi þó að málið væri viðkvæmt og líkti því við fangelsi: „Það vill enginn fangelsi í bakgarðinn hjá sér,“ sagði hann og vísaði til þess að svæðið yrði algjörlega afgirt og lokað. Hann benti einnig á að gamli baseballvöllurinn og svæðið þar sem íþróttahúsið í Rockville stóð væru fallegt útivistarsvæði sem þyrfti að huga að. Hann taldi þó fulla ástæðu til að láta reyna á verkefnið og vinna málið hratt, þar sem áhugasamir aðilar væru í mikilli tímaþröng með sín tilboð.

Bergný Jóna Sævarsdóttir (S-listi) áréttaði að málið væri risastórt og vanda þyrfti vel til verka. Hún benti á að Rockville-svæðið væri ekki skipulagt sem íbúðabyggð í dag og því gæti þurft að ráðast í miklar skipulagsbreytingar, svo sem breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Vegna þess hve skammur tími væri til stefnu og hve mörg flókin atriði þyrfti að greina af hálfu sveitarfélagsins, væri nauðsynlegt að vísa málinu til ítarlegrar vinnu í bæjarráði áður en endanleg afstaða yrði tekin.

Vísað til bæjarráðs

Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að vísa erindinu til bæjarráðs til frekari umfjöllunar og greiningar. Ljóst er að málið mun krefjast mikillar vinnu á næstu vikum þar sem ríkisstjórnin og dómsmálaráðuneytið þrýsta á skjót svör, en bæjarfulltrúar virðast á einu máli um að Rockville sé skásta staðsetningin ef á annað borð á að opna slíka miðstöð á Suðurnesjum.

Hluti þeirra mannvirkja sem stóðu í Rockville. VF-myndir: Hilmar Bragi

Eignasalan
Eignasalan