Vel heppnuð Skötumessa og fimm milljónir til góðra málefna
Fimm milljónir króna voru afhentar til góðra málefna og fólks í erfiðum verkefnum á vel heppnaðri skötumessu 2026 sem fór fram að venju í sal Gerðaskóla í Garði í gærkvöldi.
Um þrjúhundruð manns mættu og nutu skötu að sumri. Hún var léttari í ár, minna kæst og var kölluð sumarskata. Þá var líka boðið upp á salfisk og plokkfisk auk viðeigenda meðlætis eins og kartaflna, rófu og auðvitað sjóðandi hamsatólg.
Þetta var í átjánda sinn sem hátíðin er haldin en á þessum árum hafa safnast yfir hundrað milljónir króna sem hafa farið til margra góðra málefna og einstaklinga.
Ásmundur Friðriksson hefur verið í forsæti Skötumessunnar og hann var ánægður með árangurinn þrátt fyrir aðeins minni aðsókn sem líklega má rekja til undanúrslitaleiks á HM í knattspyrnu. Gestir á skötumessunni gátu þó horft á leikinn á stórum skjá, á milli þess sem þeir kjömsuðu á ljúffengum mat. Ása til aðstoðar voru oddfellowbræður hans í stúkunni Jóni forseta í Keflavík. Margir aðilar hafa stutt samkomuna frá upphafi eins og Skólamatur, Fskmarkaður Suðurnesja, Icelandair Cargo, Suðurnesjabær að ógleymdum mörgum fiskvinnslum sem skaffa skötuna en yfir 100 kíló runnu ofan í mannskapinn.
Að venju voru skemmtiatriði í formi tónlistar og söngs í boði. Ræðumaður kvöldsins var Inga Sæland en hún sagði að Ási og hún væru góðir vinir. Hún flutti stutta tölu og þakkaði fyrir frábært framtak. Hún klykkti út með því að taka eitt lag með skötumessugestum.
Myndasafn úr fjörinu fylgir hér að neðan.








