Íþróttir

Danssigur DansKompaní í Dublin: Heimsmeistarar og verðlaunaregn!
Miðvikudagur 15. júlí 2026 kl. 11:37

Danssigur DansKompaní í Dublin: Heimsmeistarar og verðlaunaregn!

Heimsmeistaramótið í dansi, Dance World Cup 2026, stendur nú yfir í Dublin á Írlandi og hafa dansarar frá DansKompaní í Reykjanesbæ farið hreinlega á kostum.

Eftir glæsilegan árangur í flokkum yngri keppenda (Mini og Children), þar sem 15 atriði komust í topp 10, tryggðu hóparnir á bak við Wonka’s Wonderland (höfundur Helga Ásta) og Munchkins (höfundar Helga Ásta, Laufey Soffía og raddþjálfari Hjördís Rós) sér heildarverðlaunin (overall awards) á stóru Grand Finals-hátíðinni. Alls lauk keppni yngri flokkanna með fjórum gullum, þremur silfrum og þremur bronsum, auk tveggja Gala-sigra.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Nú þegar eldri flokkarnir (Junior og Senior) hafa hafið keppni heldur sigursagan ótrauð áfram. Atriðið The Black Pearl eftir Helgu Ástu tryggði sér glæsilegan heimsmeistaratitil í flokknum Senior Large Group Showstopper með stórkostlegri frammistöðu og 95,9 stigum. Þá nældi atriðið GAGA eftir Hrafnhildi Unu sér í bronsverðlaun í afar sterkum commercial flokki.

Áður hafði hópurinn unnið til fjölda verðlauna á mótinu. Meðal heimsmeistara í gullvegi eru FartParty!, Mr. & Mrs. Smith og Look, allt eftir Helgu Ástu. Í silfursæti höfnuðu Bruce, The Sanderson Sisters og Funhouse, öll eftir Laufeyju Soffíu. Bronsverðlaun unnu einnig sólódansararnir Elísabet Rós (sem fékk „Golden Ticket“-boðsmiða) og Embla María, auk hópsins í Revolting Children.

Á bak við þennan sögulega árangur stendur öflugt teymi danshöfunda hjá DansKompaní: Helga Ásta Ólafsdóttir, Laufey Soffía Pétursdóttir, Hrafnhildur Una Magnúsdóttir og Ingibjörg Sól Guðmundsdóttir.

Enn er keppni í fullum gangi í Dublin og hægt er að fylgjast með beinu streymi á instreamairtv24.com/dwc-finals

Í rafrænum Víkurfréttum (sjá hér að neðan) má sjá umfjöllun um árangur DansKompaní á mótinu.
Nánar verður fjallað um árangurinn í fréttum hér á vf.is næstu daga.

Hljómahöll
Hljómahöll