Ingvar og Andrea best í Sandgerði
Ingvar Ingvarsson og Andrea Ásgrímsdóttir eru klúbbmeistarar Golfklúbbs Sandgerðis 2026. Veðrið setti svip sinn á mótið en mikill vindur og rigning gerði keppendum erfitt fyrir.
Ingvar háði harða baráttu við klúbbmeistara síðasta árs, Hlyn Jóhansson. Ingvar vann að lokum með fimm högga mun, lék á 300 höggumen Hlynur á 305. Í 3.-4.sæti voru þeir Annel Jón Þorkelsson og Grímur S. Jensson á 313 höggum.
Andrea Ásgrímsdóttir fékk ekki mikla keppni því hún var ein í meistaraflokki kvenna. Hún lék á 264 höggum.
Ari Gylfason sigraði í 1. flokki karla og Arnór Vilbergsson í 2. flokki. Steinunn Dröfn Ingibjörnsdóttir sigraði í opnum flokki kvenna og Daníel Einarsson í opnum flokki karla. Í öldungaflokki 70 ára og eldri vann Bergur Magnús Sigmundsson.






