Tvö mörk dæmd af Keflavík í tapi gegn Blikum
Keflvíkingar töpuðu gegn Blikum í Kópavogi í Bestu deild karla í knattspyrnu þar sem sigurmark heimamanna kom á 89. mínútu. Lokatölur 2-1 en tvö mörk voru dæmd af Keflvíkingum.
Gestirnir úr bítlabænum léku vel í þessum leik og voru miklu betri í fyrri hálfleik. Þeir náðu sannfærandi forystu á 24. mínútu með glæsilegu marki frá Alpha Conteh. Keflvíkingar bættu við flottu marki tíu mínútum síðar eftir aukaspyrnu Muhamed Alghoul. Marin Mudrazija tók við boltanum og sendi hann í netið en dómari leiksins dæmdi rangstöðu. Sérfræðingar Sýnar sögðu eftir leik dóminn kolrangan.
Blikar jöfnuðu leikinn á 57. mínútu og aldursforseti þeirra í liðinu, Kristinn Jónsson, sem var nýkominn inn á skoraði flott mark. Það var síðan á 94. mínútu sem Keflvíkingar jöfnuðu þegar Eiður Orri Ragnarsson fékk boltann inni í teig og sendi hann í netið. Dómari leiksins, Arnar Þór Stefánsson, dæmdi hins vegar brot á Eið. Aftur voru sérfræðingar Sýnar sammála um að mark hefði verið dæmt af Keflvíkingum sem hefði átt að standa.
Keflavík er áfram í 6. sæti með 16 stig. Næsti leikur er gegn ÍA á HS Orku vellinum í Keflavík 20. júlí.







