Viðskipti

Ný verslun opnuð á Keflavíkurflugvelli
Mánudagur 13. júlí 2026 kl. 10:22

Ný verslun opnuð á Keflavíkurflugvelli

Ný gjafavöruverslun, Saga Giftstore, verður opnuð á Keflavíkurflugvelli í byrjun ágústmánaðar. Verslunin, sem verður staðsett á aðal verslunar- og veitingasvæði flugvallarins, mun bjóða upp á fjölbreytt og vandað úrval af gjafa-og hönnunarvöru með skýra tengingu við Ísland. Áhersla verður á íslenskar ullarvörur, handprjónaðar lopapeysur, íslenskt handverk, minjagripi og norræna hönnun, auk þess sem úrval af vinsælum hönnunar- og lífsstílsvörum frá Epal verður í boði. 

„Við erum afar stolt af því að bjóða úrval frá okkar fremstu hönnuðum, þar á meðal á Hekla Ísland, Ugla Handverk, Farmers Market, Bjarni Viðar og Sign ásamt úrvali af handprjónuðum íslenskum lopapeysum.  Markmið okkar er að tryggja að bæði Íslendingar og erlendir gestir geti fundið fallegar og einstakar hönnunar- og gjafavörur í hæsta gæðaflokki,“ segir Sigrún Edda Elíasdóttir, markaðsstjóri Saga Giftstore.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Drífa ehf. sem mun reka Saga Giftstore átti hagstæðasta tilboðið í útboði um rekstur gjafavöruverslunar á Keflavíkurflugvelli sem lauk á dögunum. Drífa ehf. er íslenskt fyrirtæki með áratuga reynslu af verslunarrekstri og þróun verslunarlausna.

„Við á Keflavíkurflugvelli bjóðum nýjan rekstraraðila hjartanlega velkominn og erum gríðarlega spennt fyrir opnun Saga Giftstore,“ segir Þórunn Marinósdóttir, forstöðumaður viðskiptatekna og sölu á KEF. „Þessi nýja verslun verður tilvalinn staður fyrir erlenda ferðamenn sem vilja taka með sér minjagrip frá Íslandi og jafnframt fyrir íslenska flugvallargesti sem leita að handverki og hönnun í hæsta gæðaflokki.“

Eignasalan
Eignasalan