Bláa Lónið hf. eykur hlut sinn í þremur baðlónum
Bláa Lónið hf. hefur samið um aukningu á eignarhlut sínum í Norðurböðum ehf. sem eru hluthafar í Jarðböðunum á Mývatni og Sjóböðunum á Húsavík. Jarðböðin eru jafnframt hluthafi í Vök á Egilsstöðum. Kjarnastarfsemi þessara félaga er rekstur baðlóna. Markmið viðskiptanna er að styrkja grunnrekstur Bláa Lónsins hf. á fjölbreyttum áfangastöðum á Íslandi og auka áhættudreifingu í rekstri félagsins.
Bláa Lónið hefur frá upphafi staðið í fararbroddi í uppgangi baðlónsmenningar á Íslandi. Kaupin eru markviss liður í áformum félagsins um áframhaldandi áherslu á hágæða upplifun og vellíðan í vexti félagsins til framtíðar víða um land.
„Uppbygging baðlóna á Íslandi hefur verið einn helsti vaxtarsproti ferðaþjónustu allt frá stofnun Bláa Lónsins og skýr sérstaða landsins sem áfangastaðar. Bláa Lónið hefur fjárfest í einstökum áfangastöðum víða um land og staðirnir þrír eiga það allir sameiginlegt að hafa sína eigin sögu að segja. Um leið endurspegla þeir þau miklu gæði afþreyingar og vellíðunar sem Bláa Lónið hefur lagt áherslu á og falla því vel að vörumerki félagsins. Við sjáum af mánaðarlegum könnunum sem við gerum að þrír fjórðu ferðamanna heimsækja baðlón á meðan á dvöl þeirra á Íslandi stendur. Árangur Bláa Lónsins hefur veitt fjölmörgum innblástur og er rekstur baðlóna í dag mikilvægur þáttur í sérstöðu og styrkleika landsins sem áfangastaðar,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins.
Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Bláa Lónsins hf. og Samkeppniseftirlitsins.
Nái viðskiptin fram að ganga mun Bláa Lónið hf. eiga meirihluta í Norðurböðum. Áður hafði félagið tryggt sér meirihluta í Fontana á Laugarvatni. Bláa Lónið undirbýr nú skráningu á íslenskan hlutabréfamarkað. Landsbankinn og Fossar fjárfestingarbanki eru umsjónaraðilar útboðsins.
Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins.







