Fjölbreytt dagskrá Vitadaga í Suðurnesjabæ
Bæjarhátíðin Vitadagar verður haldin hátíðleg í Suðurnesjabæ dagana 24. til 30. ágúst næstkomandi. Óhætt er að segja að dagskrá hátíðarinnar sé með allra glæsilegasta móti þetta árið, en undir kjörorðinu „Hátíð milli vita“ er boðið upp á fjölbreytta og yfirgripsmikla dagskrá sem sniðin er að öllum aldurshópum. Íbúar og gestir Suðurnesjabæjar fá því kærkomið tækifæri til að hittast, njóta samveru, tónlistar, íþrótta og menningar í hinu einstaka umhverfi Garðs og Sandgerðis.
Samvera, hreyfing og útivist fyrir alla fjölskylduna
Hátíðarhöldin hefjast á mánudaginn af fullum krafti þar sem þemað er litagleði. Íbúar eru hvattir til að hittast í sínu nærumhverfi og skreyta götur og hverfi saman til að skapa hátíðlega stemningu. Yfir alla vikuna er boðið upp á margs konar skemmtilega dagskrárliði fyrir alla fjölskylduna. Meðal þess sem börn og fullorðnir geta tekið þátt í er sandkastalagerð í Garðskagafjöru, fjölskylduquiz á bókasafninu og samveruganga þar sem gengið verður frá bæði Þekkingarsetrinu í Sandgerði og Víðisvelli í Garði að Golfskálanum. Að göngu lokinni verður boðið upp á dýrindis grill í boði Kjörbúðarinnar, ljúffenga kjötsúpu í boði Skólamatar og frábæra skemmtun frá Sirkus Íslands.
Hreyfing og leikur leika sömuleiðis stórt hlutverk á Vitadögum. Hlaupaáhugafólk getur spreytt sig í hinu vinsæla Vitahlaupi þar sem í boði eru tvær hlaupaleiðir ásamt sérstöku krakkahlaupi fyrir yngstu kynslóðina. Fyrir þá sem vilja öðruvísi áskorun verður boðið upp á bjórhlaup Litla brugghússins. Einnig verður efnt til dorgveiðikeppni við Sandgerðishöfn, samhjóls með Team Rynkeby á milli Garðskagavita og Sandgerðisvita og þrautabrautar fyrir yngstu börnin í íþróttahúsinu. Fyrir knattspyrnuáhugafólk er nágrannaslagur Reynis og Víðis á Bronsvellinum hápunktur, auk þess sem hið hefðbundna og skemmtilega fótboltamót milli Norðurbæjar og Suðurbæjar fer fram. Þá verður boðið upp á sjósund við Bæjarskersfjöru og pottakvöld í sundlaugum bæjarins með léttum veitingum og skemmtikröftum á borð við Evu Ruzu og Hjálmar.
Saga, menning og tónlist í öllum hornum
Menning, saga og handverk skipa sömuleiðis veglegan sess í dagskránni. Efnt verður til fróðlegra söguganga um merkingar gamalla húsa í Sandgerði og Garði undir leiðsögn Merkra manna, ástarsögugöngu Hjalta Óla í vitunum og göngu eftir nývígðum stíg að Prestvörðunni í Leiru undir leiðsögn Helgu Ingimundardóttur. Einnig verður sagnakvöld í Efra-Sandgerði í umsjón Lionsmanna, prjónakaffi í Auðarstofu og handverksmarkaður með kaffi- og vöfflusölu í Miðhúsum. Í Ráðhúsinu í Garði verður glæsileg listasýning opnuð með léttum veitingum og tónlist frá Kósýbandinu.
Tónlistardagskrá hátíðarinnar er sérstaklega fjölbreytt og metnaðarfull. Hljómsveitin GÓSS heldur tónleika í Útskálakirkju og á Lopapeysukvöldi ungmennaráðs koma fram listamenn á borð við Elísu Tan, Ólaf Pétur og Fosteii. Þá verður einnig alvöru þungarokk á milli vita þegar hljómsveitirnar Aesculus og Frostborn spila í porti Vélsmiðju Sandgerðis.
Frábær hápunktur á laugardegi
Laugardagurinn 29. ágúst er sjálfur hápunktur hátíðarinnar en þá verður gríðarleg dagskrá á hátíðarsvæðinu við Sandgerðisskóla. Á dagskránni er fjölskylduskemmtun þar sem Hvolpasveitin, Bjössi brunabangsi, leikskólabörn og fleiri koma fram, og um kvöldið stíga á stokk þekktir listamenn á borð við KK, Kristmund Axel, Stebba Hilmars ásamt tvíeykinu Audda og Steinda.
Hátíðardagskránni lýkur svo með glæsilegri flugeldasýningu Björgunarsveitarinnar Sigurvonar við Sandgerðishöfn og stórdansleik með hljómsveitinni Nostalgíu í Samkomuhúsinu í Sandgerði fram á rauða nótt.
Dagskránna í heild sinni má lesa á síðu 3 í Víkurfréttum. Tekið er fram að breytingar geta orðið á dagskrá og því er fólk hvatt til að fylgjast með vef Suðurnesjabæjar þegar nær dregur hátíðinni varðandi mögulegar breytingar á dagskrá.








