MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Mannlíf

Mikið um að vera í Vogum í dag
Frá tónlistarveislu í Háabjalla í vikunni. VF/hilmarbragi
Laugardagur 15. ágúst 2026 kl. 12:13

Mikið um að vera í Vogum í dag

Stóri dagur Fjölskyldudaga í Sveitarfélaginu Vogum er runninn upp og dagskráin er hlaðin fjölbreyttri skemmtun fyrir alla fjölskylduna frá hádegi til og með kvöldstundu.

Dagskrá dagsins:

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
  • 12:00 – Opnun svæðis í Aragerði: Vélavinir sýna bíla á Hábæjartúninu (túninu við tjörnina) og í boði verða lestarferðir í kringum tjörnina fyrir yngstu kynslóðina.

  • 12:00–16:00 – Fjör á hátíðarsvæðinu:

    • Viðbragðsaðilar mæta með lögreglubíl, körfubíl og sjúkrabíl frá slökkviliðinu sem hægt verður að skoða, auk þess sem Brunabangsimm mætir á svæðið.

    • Boðið verður upp á að hoppa í sjóinn í blautbúningum og ylja sér svo í heitum pottum niðri á höfn.

    • Í Aragerði verða hoppukastalar, andlitsmálning, spákona, lazertag, bubbluboltar, bogfimi, plastaxarkast og fleira.

  • 13:00 – Brúðubíllinn: Sýning í Aragerði.

  • 14:00–16:00 – Leikir og skemmtun: Lazertag, bubbluboltar, bogfimi og plastaxarkast halda áfram á hátíðarsvæðinu.

  • 14:30 – Væb-bræður: Koma fram og skemmta á sviðinu í Aragerði.

  • 16:00 – Knattleikur: Þróttur og Dalvík/Reynir mætast á knattspyrnuvellinum.

  • 19:00 – Skrúðganga: Björgunarsveitin Skyggnir heldur utan um skrúðgöngu hverfanna þar sem gestir eru hvattir til að mæta í sínum hverfalit.

  • 19:30 – Hverfaleikar og verðlaunaafhending: Lokahnykkur hverfaleikanna fer fram fyrir framan sviðið í Aragerði þar sem keppt verður í stígvélakasti, hjónaburði og pokahlaupi.

  • 20:00 – Tónlistarveisla: Stórskemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna þar sem stórstjörnur stíga á stokk:

    • Stuðlabandið

    • Hreimur

    • Friðrik Dór

    • Páll Óskar

    • Herra Hnetusmjör

  • 23:00 – Flugeldasýning: Sveitarfélagið Vogar og Björgunarsveitin Skyggnir ljúka deginum með glæsilegri flugeldasýningu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn