MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Mannlíf

Fjölbreytt dagskrá á Fjölskyldudögum í Vogum í dag
Frá tónleikum í Háabjalla á fjölskyldudögum árið 2022. VF/hilmarbragi
Þriðjudagur 11. ágúst 2026 kl. 10:46

Fjölbreytt dagskrá á Fjölskyldudögum í Vogum í dag

Tónleikar í Háabjalla og pop-up gusa í sundlauginni

Fjölskyldudagar Sveitarfélagsins Voga standa nú sem hæst og er boðið upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá í dag, þriðjudaginn 11. ágúst. Hápunktur dagsins verður útivistar- og tónlistardagskrá í skóginum Háabjalla, auk þess sem boðið verður upp á pop-up gusu í sundlaug bæjarins.

Tónlist, kjötsúpa og afþreying í Háabjalla

Dagskráin í Háabjalla hefst klukkan 18:00, en skógurinn er staðsettur um 2,5 kílómetra fyrir utan bæinn. Þar verða notalegir tónleikar þar sem þau Ragnheiður Gröndal, Guðmann Lúðvíksson og Róbert Andri stíga á stokk og taka lagið.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Gestum verður einnig boðið upp á ýmsa afþreyingu og veitingar:

  • Veitingar: Skólamatur býður upp á heita kjötsúpu og Skógræktarfélagið Skógfell býður upp á brauðdeig sem hægt verður að grilla yfir eldi, ef veður leyfir.

  • Fjör og hreyfing: Klifurdeild Bjarkar stýrir klifri og spranga í klettunum fyrir áhugasama, og ungmennafélagið Þróttur stendur fyrir drumbakasti sem er hluti af hverfaleikum Fjölskyldudaga.

Aðgengi að Háabjalla er gott en malarvegur er alla leið að skóginum. Þeir sem kjósa að labba ekki alla leið geta keyrt Stapaveginn og lagt bilum sínum til dæmis við spennistöðina hjá undirgöngunum undir Reykjanesbraut.

Pop-up gusa í sundlauginni

Fyrir þá sem vilja slaka á verður boðið upp á einkar sérstaka viðburði í sundlauginni. Gususysturnar Petra og Thelma frá Saunagus Reykjanes mæta með pop-up gusu í tvígang:

  • Fyrri ferð: Kl. 18:00 – 18:30

  • Seinni ferð: Kl. 19:00 – 19:30

Aðeins eru 10 pláss í boði í hvorum hópi og fer skráning fram í afgreiðslu íþróttamiðstöðvarinnar.

Hljómahöll
Hljómahöll