Daníel Hjálmtýsson syngur til sólarinnar
í garðinum heima hjá sér á almyrkvanum
Tónlistarmaðurinn Daníel Hjálmtýsson býður fólk velkomið í garðinn heima hjá sér að Norðurgötu í Suðurnesjabæ í tilefni af almyrkvanum á sólu miðvikudaginn 12. ágúst næstkomandi. Daníel hefur smíðað lítið svið í garðinum þar sem hann og hljómsveit hans munu halda huggulega tónleika til að ramma inn þetta stórkostlega náttúruundur.
Tónleikarnir hefjast á slaginu 16:47. Á efnisskránni verða lög af væntanlegri breiðskífu Daníels, A Piece of Broken Glass, auk eldra efnis. Nýjasta smáskífa hans, „Bite The Bullet“, heyrist nú reglulega á útvarpsstöðinni X 97,7, en tónlist Daníels hefur vakið mikla athygli bæði hér heima og erlendis.
Daníel hefur getið sér gott orð fyrir fjölbreytta tónlistarsköpun og hefur í gegnum tíðina unnið og komið fram með meðlimum úr hljómsveitum á borð við Soundgarden, Nirvana, Mad Season, Sonic Youth og Queens of The Stone Age. Þá hefur hann einnig fyllt tónleikastaði um allt land síðasta áratuginn fyrir túlkun sína á lögum Leonard Cohen og Nick Cave.
Frítt inn og frábært útsýni
Tónleikarnir eru styrktir af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja og er aðgangur með öllu ókeypis. Útsýnið af Norðurgötu er eitt það besta sem finnst til að fylgjast með almyrkvanum og er nóg pláss í garðinum. Gestir eru hvattir til að taka með sér tjaldstóla, teppi og heitt kakó á brúsa.
Fastlega má gera ráð fyrir fleiri viðburðum á nýja sviðinu í framtíðinni, en Daníel hefur auk þess að vera verkefnastjóri hjá Þekkingarsetri Suðurnesja starfað við tónleika- og viðburðahald frá unglingsaldri.
Hægt er að kynna sér viðburðinn nánar á Facebook-síðu hans.






