Reykjanes Optikk gaf íbúum og starfsmönnum Hrafnistu á Nesvöllum sólmyrkvagleraugu
Reykjanes Optikk hefur fært íbúum og starfsfólki Hrafnistu á Nesvöllum sólmyrkvagleraugu að gjöf, en stóri dagurinn nálgast óðfluga þegar almyrkvi verður á sólu á Íslandi þann 12. ágúst næstkomandi.
Gleraugun eru einnig til sölu hjá Reykjanes Optikk við Aðaltorg í Reykjanesbæ á 390 krónur. Í tengslum við gjöfina vill Reykjanes Optikk minna á gríðarlegt mikilvægi þess að nota eingöngu viðurkennd sólmyrkvagleraugu til að vernda augun gegn skaðlegum geislum sólarinnar, sem og sérstakar síur eða hlífar ef notaðir eru sjónaukar eða myndavélar.
Einnig er vakin athygli á því að þeir sem nota venjuleg sjóngleraugu að staðaldri þurfa að gæta þess að setja sólmyrkvagleraugun utan yfir eigin gleraugu þegar horft er til sólar.





