Hrun í kríuvarpi í Innri-Njarðvík: Nágrannar telja unga á fingrum annarrar handar
Staðan hjá kríunni í Innri-Njarðvík virðist vera keimlík því sem greint var frá á Vatnsleysuströnd, þar sem vargur hefur leikið varplöndin grátt. Að sögn íbúa við Stekkjargötu hefur mávurinn nánast hreinsað upp allt kríuvarp á svæðinu á skömmum tíma.
Íbúar við Stekkjargötu segja að um 100 kríupör hafi hafið varp á svæðinu í vor. Krían mætti frekar seint, eða um 11. maí, sem er um fjórum dögum síðar en á meðalári. Því mátti búast við að varpinu lyki síðar en venjulega. Rauð strik voru dregin í reikninginn þegar svæðið tæmdist skyndilega.
„Það er nánast allt horfið fyrir tíu dögum. Það er allt að hálfum mánuði of snemma,“ segja viðmælendur blaðsins. Að þeirra mati eru ungarnir sem komust á legg á svæðinu teljandi á fingrum annarrar handar.
Áhyggjur af öðrum tegundum og ákall um aðgerðir
Margar aðrar fuglategundir verpa í skjóli kríunnar á svæðinu og telja nágrannar varplandsins líklegt að ungar þeirra hafi hlotið sömu örlög og ungar kríunnar. Þótt þau geri sér grein fyrir því að afrán sé hluti af gangi náttúrunnar telja þau að mávastofninn á Suðurnesjum hafi stækkað úr öllu hófi á undanförnum árum.
„Að mínu mati þarf stórátak í að fækka í þessum mávastofni, hér á Suðurnesjum,“ segja viðmælendur blaðsins að lokum og kalla eftir því að farið verði í aðgerðir til að vernda kríuna og annan varpfugl á svæðinu.






