Grindavík dregur regnbogafánann að húni: „Sýnum réttindabaráttu hinsegin fólks stuðning“
Grindavíkurbær hefur dregið regnbogafánann að húni til að sýna réttindabaráttu hinsegin fólks stuðning næstu daga. Í færslu sem bærinn birti á samfélagsmiðlum er vakin athygli á því að unnið sé að því alla daga að byggja upp samfélag þar sem öllum er tekið opnum örmum, ásamt því að þakkað er fyrir það umburðarlyndi og þá samkennd sem einkennir bæjarfélagið.
Regnbogafáninn á sér sérstaka sögu í Grindavík, en fáninn við íþróttahús bæjarins var sá eini sem blakti í bænum fljótlega eftir að bærinn var rýmdur í nóvember 2023.
Tengsl bæjarins við réttindabaráttuna ná aftur fyrir atburði síðustu mánaða. Grindavík var meðal annars fyrsta sveitarfélagið á landsbyggðinni til að gera samning við Samtökin '78 um hinsegin fræðslu. Þá hefur bærinn unnið úttekt á jafnrétti og aðgengi í íþrótta- og tómstundastarfi, auk þess sem unglingar bæjarins máluðu regnboga við félagsmiðstöðina Þrumuna.
„Grindavík er fyrir okkur öll!“ segir í tilkynningu bæjarins.





