Fréttir

Stór skref tekin í leikskólamálum í Vogum
Mánudagur 3. ágúst 2026 kl. 08:23

Stór skref tekin í leikskólamálum í Vogum

Suðurvellir stækkaðir og heimgreiðslur hækkaðar

Leikskólamál voru í brennidepli á nýlegum fundi bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga. Meirihlutinn samþykkti tillögu um stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla, auk þess sem samþykkt var að ráðast í aðgerðir til að styðja við barnafjölskyldur, meðal annars með breytingum á heimgreiðslum og niðurgreiðslum hjá dagforeldrum.

Mikil umræða varð um framtíðarskipan leikskólamála á fundinum og voru þrjú ólík erindi afgreidd sem öll snerta þjónustu við æskulýðinn í sveitarfélaginu.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Suðurvellir stækkaðir – Minnihlutinn sat hjá

Lögð var fram tillaga og minnisblað frá sérstökum vinnuhópi um stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla. Atli Geir Júlíusson, verkefnastjóri hjá Verkfræðistofu Suðurnesja, og Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, kynntu niðurstöður hópsins.

Tillaga vinnuhópsins um stækkunina var samþykkt með atkvæðum meirihlutans, en fulltrúar minnihlutans sátu hjá.

Í bókun minnihlutans kom fram að greinargerðin hefði borist þeim með aðeins sólarhrings fyrirvara. Þeir töldu nauðsynlegt að rýna betur í tillögurnar og fá svör við opnum spurningum áður en ákvörðun væri tekin.

Breyttar heimgreiðslur og stuðningur frá 1. september

Þá samþykkti bæjarráð samhljóða minnisblað bæjarstjóra um aðgerðir til að bregðast við stöðunni í leikskólamálum og styðja við barnafjölskyldur.

Bæjarstjóra var falið að útfæra aðgerðirnar nánar ásamt kostnaðarmati. Áætlað er að útfærðar tillögur verði lagðar fyrir í ágúst næstkomandi, með það að markmiði að breytingar á heimgreiðslum og niðurgreiðslum vegna barna 18 mánaða og eldri hjá dagforeldrum taki gildi strax 1. september 2026.

Vegna þessara samþykkta dró A-listi minnihlutans til baka eigin tillögu í leikskólamálum, þar sem efni hennar rúmaðist innan þeirra ákvarðana sem þegar höfðu verið teknar á fundinum.

Eignasalan
Eignasalan