„Hlökkum til að kynna okkur þessar hugmyndir nánar“
Hjónin Steinþór Jónsson og Hildur Sigurðardóttir hjá Hótel Keflavík hafa nýverið kynnt metnaðarfulla framtíðarsýn undir nafninu KEF Center. Verkefnið gerir ráð fyrir mikilli umbreytingu á Vatnsnesi með byggingu allt að 1.100 nýrra íbúða, öflugu atvinnu- og þjónustuhúsnæði, stækkaðri heilsulind og nýju baðlóni (KEF Lagoon) í hjarta bæjarins. Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ fagna frumkvæðinu og lýsa yfir vilja til að greiða götu verkefnisins.
„Það er alltaf ánægjulegt að sjá þann metnað og kraft sem Steinþór og fjölskylda hans sýna í uppbyggingu í Reykjanesbæ. Það blasir við að metnaður þeirra fyrir bæjarfélaginu er mikill og slíku frumkvæði ber alltaf að fagna,“ segir Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, um framtíðarsýnina fyrir Vatnsnesið.
Stórhuga hugmyndir sem skapa ný verðmæti
„Hugmyndirnar um KEF Center eru stórhuga og metnaðarfullar. Það er jákvætt þegar einkaaðilar horfa til framtíðar, sjá ný tækifæri og eru tilbúnir að fjárfesta í samfélaginu okkar. Bæjaryfirvöld munu ávallt leggja sig fram um að skapa umhverfi þar sem einstaklingar og fyrirtæki geta byggt upp, vaxið og skapað ný verðmæti,“ segir Vilhjálmur.
Svæðið hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum og þar hafa skapast ný tækifæri til endurnýjunar og fjölbreyttrar uppbyggingar. Uppbyggingin á KEF Spa & Fitness og umbreyting Vatnsneshússins hafa breytt ásýnd svæðisins til hins betra og því verður spennandi að sjá hvort þessar nýju hugmyndir geti orðið næsta skref í þeirri þróun. Ef vel tekst til gæti slíkur þjónustu- og upplifunarkjarni styrkt ferðaþjónustu, atvinnulíf, mannlíf og þjónustu við íbúa.
Vilja greiða götu en ekki leggja stein í götu
„Af hálfu bæjaryfirvalda er stefnan einföld: við viljum greiða götu einstaklinga og fyrirtækja sem vilja fjárfesta og skapa verðmæti í Reykjanesbæ, en ekki leggja stein í götu þeirra. Við hlökkum því til að kynna okkur þessar hugmyndir nánar og eiga gott samtal við alla þá sem vilja leggja sitt af mörkum til að gera Reykjanesbæ enn öflugra samfélag,“ segir Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri að lokum.





