Tengja.is
Tengja.is

Aðsent

Ekki þarf maður að skulda neinum til að lenda á vanskilaskrá hjá Creditinfo
Föstudagur 31. júlí 2026 kl. 18:30

Ekki þarf maður að skulda neinum til að lenda á vanskilaskrá hjá Creditinfo

Ég undirritaður og konan mín keyptum okkur íbúð að Vatnsnesvegi 29 í Reykjanesbæ. Okkur hefur líkað vel að búa þar, en það kom fljótlega í ljós að það var ekki allt sem sýndist á yfirborðinu. Það kom sem sagt fljótlega í ljós að það fylgdi böggull skammrifi, böggull sem við höfðum keypt okkur inn í.

Árið 1933 hafði verið gerður lóðaleigusamningur um 9004 fermetra sem átti að borga rétt rúmar 90 krónur fyrir á ári í lóðarleigu.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Þessi samningur er orðaður sem hér segir:

„Lóðin er leigð á erfðafestu óuppsegjanlega til óákveðins tíma með rétti fyrir leigutaka til að selja eða veðsetja svo sem væri lóðin hans af leigusala, þó má leigutaki hvorki selja né veðsetja hluta af lóðinni, en aðeins í heild.“

Allir sem ég hef talað við, lögfræðingar og aðrir, segja að svona orðalag í samningum vísi til þess að lóðin sé eignarlóð.

Við hjónin sem búum í íbúð að Vatnsnesvegi 29 neituðum að borga fyrir árið 2025 að borga þá upphæð sem landeigendur rukkuðu okkur um eða 74 þúsund krónur.

Í  matsgerð í matsmálinu nr. -10/1993 kemur fram að metnar voru 318 lóðir en af þeim eru 294 í Keflavík en 24 í Njarðvík.

Það féll dómur um sambærilegt mál í Héraðsdómi Reykjaness 8. nóvember 1996 þar sem segir að lóðaleiga skuli nema 0,5% af lægsta taxta verkamanns.

Við erum með samning, sem fyrr er getið, upp á annað. Við höfum fengið hótunarbréf frá landeigendum.

Kröfuhafinn eru Landeigendur, Ytri Njarðvík, m/Vatnsnesi.

Þegar málin eru skoðuð kemur í ljós að íbúar sem búa á Reykjanesskaga eru rukkaðir um allt upp í 2% af fasteignamati lóðar í lóðaleigu, sem þekkist hvergi annars staðar.

Þetta hafa íbúar á Suðurnesjum þurft að sætta sig við, annars beittir hótunum eins og um er rætt í byrjun.

Bæjarfélög hafa rukkað þessi gjöld í sumum tilfellum og reiknað þau út fyrir lóðareigendur, vegna þess að landeigendur segjast eiga landið vegna þess að langafi þeirra átti belju sem var að bíta grasið þarna í fjarlægri fortíð.

Ekki hefur borið mikið á því að bæjarstjórnir sem eru kosnar af almenningi og þiggja laun frá okkur bæjarbúum hafi nokkurn tímann aðstoðað okkur bæjarbúa í þessum málum, heldur reiknað gjöldin út fyrir þá og sent á Motus til innheimtu.

Þess vegna erum við tilbúin að mæta landeigendum í Héraðsdómi ef með þarf til að fá botn í þetta.

Það féll dómur um sambærilegt mál í Héraðsdómi Reykjaness 8. nóvember 1996 þar sem segir að lóðaleiga skuli nema 0,5% af lægsta taxta verkamanns.

Eftir dómnum hefur ekki verið farið.

Það eru margir að spyrja um þessi mál og því set ég þetta inn hérna núna.

Þegar við horfum á fréttirnar þá er stundum verið að tala um mannréttindi.

Hvað eru mannréttindi?

Er það eitthvað sem á við okkur eða eru þau bara fyrir fjármagnseigendur?

Mér datt í hug hvort einhver hérna úti gæti búið til forrit sem allir landsmenn geta tekið þátt í og skorað á ríkisstjórnina að setja lög um hámarkslóðaleigu.

Þeir þyrftu kannski að sleppa símanum á meðan, það er ekki flutningskostnaður á því.

Konan mín á frænda á Kirkjuvöllum í Hafnarfirði og þau eiga jafnstóra íbúð. Það skakkar 50.000 krónum hvað konan mín borgar meira hér í Keflavík.

Erum við ekki fólk með mannréttindi á Reykjanesi?

Látið í ykkur heyra ef þið hafið áhuga, þið sem gætuð búið til svona forrit.

Sigurður Þorleifsson

Eignasalan
Eignasalan