Fréttir

Fuðraði upp við smábátahöfnina
Föstudagur 31. júlí 2026 kl. 14:41

Fuðraði upp við smábátahöfnina

Tilkynnt var um eld í fólksbifreið við smábátahöfnina í Grófinni í Keflavík í hádeginu. Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja og lögregla voru kölluð til.

Þegar að var komið var gríðarlegur eldur og stóð bíllinn, Kia Stonic, í björtu báli. Slökkviliðsmenn voru fljótir að ráða niðurlögum eldsins.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Lögregla ræddi við fólk sem var á bílnum. Það hafði orðið vart við reyk undan vélarhlífinni en bifreiðin gengur fyrir jarðefnaeldsneyti. Fólkið náði að stoppa í tæka tíð og koma sér út úr bílnum þar sem það hringdi svo eftir aðstoð.

Bifreiðin er gjörónýt eftir eldinn.

Meðfylgjandi myndir tók Hilmar Bragi á vettvangi í hádeginu.








Eignasalan
Eignasalan