Aðsent

Hagsmunasamtök íbúa á Ásbrú halda stofnfund
Fimmtudagur 23. júlí 2026 kl. 14:34

Hagsmunasamtök íbúa á Ásbrú halda stofnfund

Hagsmunasamtök íbúa á Ásbrú halda stofnfund mánudaginn 10. ágúst í Andrews Theater á Ásbrú. Húsið verður opnað klukkan 18:30 og fundurinn hefst klukkan 19:00. Fundurinn er opinn öllum íbúum hverfisins og boðið verður upp á kaffi og meðlæti.

Á fundinum verða samþykktir samtakanna bornar undir atkvæði, stjórn kosin og starfsáherslur næstu missera kynntar. Framboð til stjórnar eru opin og hægt er að bjóða sig fram á fundinum sjálfum.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Aðdragandinn er umfangsmikil íbúakönnun sem lögð var fyrir í júní. Alls svöruðu 266 íbúar, 163 á íslensku og 103 á ensku, sem svarar til rúmlega sex prósenta íbúa hverfisins. Könnunin var tvítyngd, enda er hlutfall íbúa af erlendum uppruna hátt á Ásbrú.

Niðurstöðurnar draga upp skýra mynd. Áttatíu og fjögur prósent svarenda kalla eftir matvöruverslun í hverfinu. Áttatíu og eitt prósent telja mikilvægt að byggja nýjan grunnskóla, þar af 92 prósent foreldra og 75 prósent þeirra sem ekki eiga börn á skólaaldri. Þrjú mál deila efsta sæti forgangslistans með 44 prósent hvert: nýr skóli, græn svæði og verslun og þjónusta.

Athygli vekur að 63 prósent svarenda segja óljóst hver beri ábyrgð á hverfinu. Af þeim hafa 78 prósent lent í því að mál falli milli ábyrgðaraðila. Ásbrú heyrir undir Reykjanesbæ en Kadeco fer einnig með þróunarhlutverk á svæðinu.

Almenningssamgöngur koma illa út. Kvöldsamgöngur fá næstlökustu einkunn allra átján þátta sem mældir voru og 61 prósent lýsa óánægju. Samanburður sem samtökin unnu sýnir að úr Reykjanesbæ eru fimm beinar ferðir á virkum degi til Reykjavíkur og engin um helgar, á meðan Akranes hefur tólf virka daga og átta um helgar og Selfoss fimmtán og sjö.

Níutíu prósent svarenda lýstu áhuga á að taka þátt í starfi samtakanna með einum eða öðrum hætti.

Samtökin starfa í fimm málaflokkum: Umhverfi og umhirða, menntun og börn, samgöngur og öryggi, þjónusta og uppbygging, og samskipti og samfélag. Áherslan er á gagnadrifna og ópólitíska hagsmunagæslu í samtali við sveitarfélagið.

Nánari upplýsingar má finna í Facebook-hópnum Hagsmunasamtök íbúa á Ásbrú.
www.facebook.com/groups/hagsmunasamtok.asbru

Eignasalan
Eignasalan