Djúpavík, Ingólfsfjörður og Norðurfjörður
Júlímánuður er kominn ansi langt og núna er ég staddur ekki langt frá Drangsnesi í smá fríi. Ég hef nú oft fundið tengingar við Suðurnesin og þá staði sem ég hef verið staddur á hverju sinni. Og það er nú töluvert mikið hægt að tengja Suðurnesin við svæðið hérna við Drangsnes og Hólmavík, og jafnvel norðar, við Djúpavík, Ingólfsfjörð og Norðurfjörð.
Djúpavík og Ingólfsfjörður eiga sér sögu sem miklir síldarstaðir sem voru í notkun á síldarárunum um 1940 og fram yfir 1950, þó að reyndar hafi verksmiðjan í Djúpavík verið rekin lengur, eða frá 1934 og til 1970 þegar henni var endanlega lokað. Á meðan báðar verksmiðjurnar voru í rekstri var ansi mikið um síldarbáta frá Suðurnesjum sem lönduðu á þessum tveimur stöðum.
Ef við færum okkur nær nútímanum þá er töluvert mikið um að bátar sem voru gerðir út frá Drangsnesi og Hólmavík og voru þá með skráninguna ST, komi suður á vertíð, t.d. til Sandgerðis, Grindavíkur og líka til Þorlákshafnar.
Bátar frá Suðurnesjunum hafa líka farið þangað til veiða og best er að minnast á mikið makrílmok sem var í Steingrímsfirði 2012 og 2013 og þá fóru töluvert margir á makríl í Steingrímsfjörð og meira að segja til að auka afkastagetu hafnarinnar var fenginn vörubíll með krana frá Njarðvík til Hólmavíkur til að hjálpa til við löndun á makríl.
Línubáturinn Margrét GK fór til Hólmavíkur og réri þar frá júlí og út september árið 2024.
Núna er þar báturinn Gaukur GK á strandveiðum en hann byrjaði á veiðum á Hólmavík en er núna kominn til Norðurfjarðar.
Annars er búið að draga töluvert mikið úr veiði strandveiðibátanna og núna stefnir í að dagarnir sem bátarnir eiga eftir séu ansi fáir. Líklega verður ekki strandveiði í ágúst.
Núna hafa fimm bátar frá Suðurnesjum fært sig til Hornafjarðar, en það er Hafdalur GK sem er búinn að vera þar alla vertíðina, Viktor GK, Séra Árni GK, Sólon KE og Hawkerinn GK kom síðastur en hann kom núna fyrir nokkrum dögum á Hornafjörð.
Grímsi GK er á ufsanetum við Suðurströndina og landar í Þorlákshöfn og hefur gengið ansi vel, hann er kominn með 134 tonn í átta róðrum og mest 29 tonn. Emma Rós KE hefur farið í einn netaróður frá Sandgerði, en báturinn var við veiðar í röstinni að eltast við ufsa og kom með 4,7 tonn í land.
Í síðasta pistli var ég að skrifa um sæbjúgu og núna hefur Jóhanna ÁR hafið veiðar og hefur landað 13 tonnum í tveimur róðrum í Njarðvík. Það gengur vel hjá Kletti ÍS sem hefur landað 95 tonnum í níu róðrum í Njarðvík af sæbjúgum, mest 14,5 tonnum í einni löndun. Báðir bátarnir hafa verið við veiðar út af Garðskaga.






