Gott verð fæst fyrir ufsa sem er ódýr í leigu
Sumarið er komið. Já, það má með sanni segja það, því að veðurfarið núna síðustu daga og vikur er búið að vera vægast sagt mjög gott og sjórinn eins og spegill. Þessi vika, sem er síðasta heila vikan í júní, er líka síðasta vikan sem margir strandveiðibátarnir mega róa.
Það er þannig í lögum um strandveiðibátana að þeir mega einungis róa 12 daga í hverjum mánuði og margir bátar eru komnir með 10 róðra og núna í júní eru eftir 6 virkir dagar sem bátarnir mega róa.
Þeir bátar sem eru komnir með 10 daga fóru margir á sjóinn þann dag sem þessi pistill er skrifaður og það þýðir að þeir eiga einungis einn dag eftir. Þá fækkar töluvert í flotanum, en það eru einhverjir bátar sem munu ná að róa þessa daga út júní því ekki hafa allir bátarnir farið í 10 róðra.
Annars hefur færabátunum sem fara á ufsa fjölgað smá og núna um helgina fóru fjórir bátar á ufsann frá Sandgerði, Addi afi GK fór í Röstina og Sindri GK, Ragnar Alfreðs GK og Dóra Sæm HF fóru allir út á Boða og Hrygginn en það er í um 45 mílna fjarlægð frá Sandgerði.
Bátunum gekk nokkuð vel. Addi Afi GK kom með 2,9 tonn og þar af var ufsi 2,4 tonn. Sindri GK kom með 2,9 tonn, Ragnar Alfreðs GK kom með 1,9 tonn og Dóra Sæm HF var aflahæstur með 3,8 tonn, og voru allir bátarnir einn dag á veiðum.
Röstin er veiðisvæði sem hefur í gegnum áratugina verið ansi vinsælt veiðisvæði, og þá aðallega hjá færabátum og netabátum. Botninn er frekar grýttur þar sem og miklir straumar sem gera þetta svæði erfitt fyrir báta sem eru á togveiðum, t.d. trollbáta og dragnótabáta. Sigurfari GK er t.d. einn af fáum dragnótabátum sem hafa verið á dragnót í Röstinni því að hann er með mjög stóra vél og mikinn togkraft og hefur aflið til þess að stunda veiðar í Röstinni.
Undanfarin ár hefur ekki verið mikið um að netabátar séu þar á veiðum yfir sumarið, en ég sjálfur var nú á netum þarna yfir sumartímann á Bergi Vigfúsi GK og var þá sá mikli aflakóngur Grétar Mar skipstjóri á Bergi Vigfúsi GK. Var þá Oddur Sæmundsson þarna á veiðum á Stafnesi KE og var ansi stíft sótt þarna á svæðið í kringum Eldey.
Eins og segir þá hafa ekki margir netabátar verið á ufsaveiðum í Röstinni undanfarin sumur, þangað til núna, því að núna er Emma Rós KE byrjuð á netum en báturinn lagði netin sín í fyrsta skipti núna eftir helgi, en báturinn rær með 4 trossur.
Það verður fróðlegt að sjá hvernig bátnum mun ganga, en báturinn sem er búinn að vera í Keflavík í vetur hefur verið að veiða fyrir Hólmgrím og er núna kominn til Sandgerðis og mun landa ufsanum á markað þar, en leiguverð á ufsa er mjög lítið og verð á fiskmarkaði er mjög gott.
Ekki eru allir færasjómenn sáttir við að netabátur sé kominn í Röstina, en samstarf á milli manna þarna á þessu svæði ætti alveg að geta gengið upp. Þann tíma sem ég var á netum þarna á Bergi Vigfúsi GK ásamt Stafnesi KE þá var samtals trossufjöldi hjá báðum bátunum hátt í 20, og stíft róið. Þá voru þarna líka færabátar og þá helstir Stjáni á Skúmi RE og Svanur á Birgi RE, en þeir stunduðu færaveiðar í Röstinni lengst allra færabáta og rótfiskuðu þar. Eldri sjómenn sem lesa þennan pistil og voru á veiðum þarna í grennd ættu að muna vel eftir Stjána og Svani.







