Fréttir

Ný snjallgangbraut við Njarðarbraut eykur öryggi vegfarenda
Búnaður við snjallgangbrautina. Mynd: Reykjanesbær
Föstudagur 26. júní 2026 kl. 07:38

Ný snjallgangbraut við Njarðarbraut eykur öryggi vegfarenda

Reykjanesbær hefur tekið í notkun nýja og háþróaða snjalllausn við gangbraut á Njarðarbraut. Kerfinu er ætlað að auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda og er liður í stærra verkefni bæjarins sem snýr að öruggari og skilvirkari samgöngum.

Snjallkerfið nemur þegar fólk nálgast eða fer yfir gangbrautina og varar ökumenn við með LED-ljósum. Markmiðið er að gera vegfarendur sýnilegri og bæta öryggi, sérstaklega í myrkri og erfiðum veðurskilyrðum. Samhliða hefur verið sett upp sérstök lýsing sem lýsir upp gangandi vegfarendur og auðveldar ökumönnum að sjá þá.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Áform eru uppi um að setja sambærilegan búnað upp við fleiri gangbrautir í Reykjanesbæ á næstu árum, en reynslan af þessari fyrstu gangbraut mun nýtast við frekari úrbætur.

Safnar gögnum en gætir persónuverndar

Auk þess að auka öryggi safnar kerfið tölfræðilegum upplýsingum um umferðina á svæðinu. Meðal þess sem hún skráir er:

  • Fjöldi gangandi vegfarenda

  • Fjöldi ökutækja

  • Hraði ökutækja

  • Almennt umferðarmynstur

Þessar upplýsingar munu nýtast bænum við framtíðarskipulagningu samgangna og frekari úrbætur á umferðaröryggi. Tekið er fram að kerfið tekur ekki upp myndskeið sem hægt er að skoða síðar og er ekki ætlað til að bera kennsl á einstaklinga, svo persónuvernd er fyllilega tryggð.

Umferðarreglur breytast ekki

Þótt tækninni fleygi fram breytast reglurnar í umferðinni ekki. Ökumenn bera áfram ríka ábyrgð á að sýna aðgát við gangbrautir og veita gangandi og hjólandi vegfarendum forgang. Eins eru vegfarendur hvattir til að gæta varúðar og líta til beggja hliða áður en farið er yfir götuna.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar