Opnaðu bókhaldið, Halldóra Fríða
Heimir – félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ telur ljóst að Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, oddviti Framsóknar í Reykjanesbæ, þurfi að gera hreint fyrir sínum dyrum og upplýsa bæjarbúa um hversu háar greiðslur hún þáði vegna námsleyfis á sama tíma og hún gegndi starfi bæjarstjóra.
Nú liggur fyrir að Halldóra Fríða, sem hefur gagnrýnt launakjör nýs bæjarstjóra, þáði sjálf hærri laun en hann fyrir sama starf.
Þá þáði hún jafnframt fundarþóknanir sem hann hefur ekki þegið. Einn mánuðinn fékk hún 3,8 milljónir króna fyrir starf sitt sem bæjarstjóri og bæjarfulltrúi, en að jafnaði voru laun hennar vel yfir þrjár milljónir á mánuði.
Það sem vekur þó enn meiri athygli er að ofan á þessi kjör fékk hún greiðslur vegna námsleyfis. Hún hefur þó ekkert upplýst um hversu háar greiðslur þetta voru. Má ætla að þegar mest á lét hafi heildargreiðslur, með launum vegna námsleyfis, til hennar numið á bilinu 4-5 milljónum króna á mánuði.
Þá liggur heldur ekki fyrir hvaða greiðslur Halldóra Fríða þáði sem formaður Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum á sama tíma. Því fylgja einhverjar þóknanir, sem myndu þá bætast við þær tekjur sem þegar hafa verið ræddar.
Henni hefði verið í lófa lagt að fara fyrir bæjarráð og lækka eigin laun í þágu skattgreiðenda á meðan hún þáði jafnframt greiðslur vegna námsleyfis. Þess í stað þáði hún full laun sem bæjarstjóri, laun sem bæjarfulltrúi, fundarþóknanir og greiðslur sem starfsmaður bæjarins í námsleyfi.
Það er fullkomlega eðlilegt að spyrja sig hvort það hafi verið siðferðilega réttlætanlegt gagnvart skattgreiðendum að þiggja slíkar ofurgreiðslur.
Þær spurningar verða enn áleitnari í ljósi þess að Halldóra hefur sjálf kosið að gera launakjör annarra að pólitísku hitamáli.
Til að tryggja gagnsæi og upplýsta umræðu væri eðlilegt að Halldóra Fríða birti sundurliðaðar upplýsingar um kjör sín á þeim tíma sem hún gegndi starfi bæjarstjóra. Bæjarbúar eiga rétt á að hafa skýra mynd af heildarkjörunum og draga sínar eigin ályktanir út frá þeim upplýsingum.
- Stjórn Heimis









