Fjóla Margrét valin í kvennalandsliðið í golfi
Fjóla Margrét Viðarsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbi Suðurnesja hefur verið valin í kvennalandsliðið í golfi og mun leika með liðinu á Evrópumóti kvenna á Írlandi 7.-11. júlí.
Fyrir Evrópumótið munu landsliðshópar Íslands, karla, kvenna og unglinga fara í æfingaferð til Woodhall Spa í Englandi, heimavallar enska landsliðsins í golfi.
„Ég var var mjög dugleg í allan vetur og hef æft mjög vel síðustu mánuði, ekki bara í Leirunni heldur líka með afrekshópi Golfklúbbsins Keilis í Hafnarfirði,“ segir Fjóla Margrét sem er spennt fyrir komandi verkefni með kvennalandsliðinu.
Fjóla var ekki valin í afrekshóp Golfsambands Íslands síðasta haust sem vakti athygli en hún varð Íslandsmeistari í holukeppni stúlkna og stigameistari ungmenna. Hún lék það ekki á sig fá og strangar æfingar og gott hugarfar hefur skilað henni mjög góðum árangri í stigamótum GSÍ í vor og sumar og nú með því að vera valinn í kvennalandsliðið, aðeins 19 ára gömul. Hún hefur verið í toppbaráttunni í öllum mótum sumarsins og verið í 2.-4. sæti í þeim og er nú í 3. sæti á stigalista kvenna.
Fjóla sem er aðeins nítján ára, lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja á tveimur og hálfu ári í desember 2025 aðeins 18 ára gömul en hún hefur ákveðið að söðla um og heldur til Bandaríkjanna síðla sumars til náms og golfiðkunar í bandarísku háskólagolfi. Þar mun hún nema í University of Idaho í Bandaríkjunum.










