Fréttir

Töluverður erill hjá Brunavörnum Suðurnesja í gær
Frá vettvangi upphreinsiverkefnis á Reykjanesbraut í gær. Mynd: Brunavarnir Suðurnesja
Fimmtudagur 25. júní 2026 kl. 10:27

Töluverður erill hjá Brunavörnum Suðurnesja í gær

Töluverður erill var hjá dagvakt Brunavarna Suðurnesja í gær en hún sinnti alls tíu útköllum yfir daginn. Meðal verkefna var tilkynning sem barst á tólfta tímanum um upphreinsun á Reykjanesbraut, en þar var um fimmtíu metra langan vettvang að ræða.

Síðar um daginn, rúmlega sex, barst tilkynning um umferðarslys á Garðskagavegi þar sem bifreið var ekið á kyrrstæða bifreið í vegkanti með þeim afleiðingum að hún endaði út í móa. Einn maður var í bifreiðinni og var hann fluttur til skoðunar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar