Fimmtudagur 11. júní 2026 kl. 06:01

Guðný Birna: Erum sérfræðingar í bænum okkar

Eftir tólf ára samfellda setu í framlínu bæjarstjórnar Reykjanesbæjar er Guðný Birna Guðmundsdóttir, oddviti Samfylkingarinnar, mætt í minnihluta. Hún segir tilfinninguna blendna en mætir til leiks með mikla reynslu í farteskinu og lýsir yfir áhyggjum af boðuðum sparnaðarkröfum nýja meirihlutans.

Guðný Birna ræddi við blaðamann fyrir fyrsta fund nýrrar bæjarstjórnar. Hún horfir stolt yfir farinn veg en játar að það fylgi því ákveðin viðbrigði að færast yfir í minnihlutann.

Erfitt að vera lengi í vörn

„Tilfinningin er blendin, við skulum alveg segja það,“ segir Guðný aðspurð um nýja hlutverkið. „Þetta eru búin að vera löng og góð tólf ár og við erum búin að skila góðu verki. En þetta er bara vilji íbúanna og það sem kom upp úr kössunum. Við verðum bara í þéttum minnihluta og stöndum vörð um okkar góðu verk.“

Aðspurð hvort eitthvað hafi klikkað í kosningabaráttunni segir Guðný svo ekki vera. Henni hafi fundist baráttan hvorki grimm né óvægileg, þótt vissulega hafi ákveðin mál eins og blokkastefna verið dregin fram sem henni finnist kannski fullléttvæg.

„Við lögðum allt í þetta. En það er erfitt að vera í vörn lengi og tólf ár eru langur tími. Við erum bara stolt af okkar verkum.“

Hafa áhyggjur af hálfs milljarðs sparnaði

Guðný segist klárlega ætla að nýta reynslu sína til að veita nýja meirihlutanum öflugt aðhald og segir hópinn þekkja innviði bæjarins út og inn. „Heldur betur. Við erum sérfræðingar í bænum okkar og við höldum því áfram þótt við séum komin í minnihluta. Við stöndum okkar plikt.“

Þegar hún er spurð út í loforð og áherslur nýja meirihlutans dregur hún ekki dul á áhyggjur sínar, sérstaklega hvað varðar fjármálin og stór framkvæmdamál í bænum.

„Já, ég hef áhyggjur af þessum hálfa milljarði í sparnað strax. Ég hef áhyggjur af starfsfólkinu okkar, verkefnunum okkar, framkvæmdunum og viðhaldinu,“ segir Guðný og bendir á mikilvæg verkefni sem standi yfir. „Við erum að klára stóru grunnskólaverkefnin okkar og maður spyr sig hvað verður um þau. Nýi meirihlutinn er ekki búinn að sýna á nein spil enn þá, en þetta bara kemur í ljós á fundinum og á næstu vikum.“