Þokkalegustu keilu- og löngutúrar hjá línuskipunum
Línuskipin Páll Jónsson GK og Sighvatur GK lönduðu bæði í Grindavík í vikunni. Afli hvors skips var um 85 tonn og var meginhluti aflans keila og langa. Andrés Óskarsson, sem annast aflastýringu hjá Vísi, segir á vef Síldarvinnnslunnar að auk keilu og löngu hafi Páll Jónsson verið með dálítið af karfa, þorski og keilubróður, en skipið var að veiðum úti á Fjöllum suðvestur af Reykjanesskaga.
Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri á Sighvati, var mjög sáttur við túrinn en þeir voru einnig með um tíu tonn af aldamótakarfa. Hann segir að veiðar hafi hafist í kantinum sunnan við Melsekk þar sem teknar voru þrjár lagnir. Síðan var haldið á Litla Dímon og Litlabanka þar sem fékkst risastór aldamótakarfi, og endað á Þjóðverjahólum. Að sögn Óla Björns gekk túrinn vel og spilaði veðrið líka með en það var bongóblíða mestallan tímann.







