Oddvitar meirihlutans: Nýtt sóknarskeið í bæ tækifæranna
Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar Reykjanesbæjar fór fram á dögunum þar sem nýr meirihluti tók formlega við keflinu. Fram undan eru mikil verkefni, skipulagsbreytingar á nefndakerfinu og nýr bæjarstjóri sem ætlar að fresta sumarfríinu til að láta hendur standa fram úr ermum.
Víkurfréttir náðu tali af Vilhjálmi Árnasyni, nýjum bæjarstjóra, og Gunnlaugi Kárasyni, formanni bæjarráðs, rétt áður en fyrsti fundurinn hófst. Augljós spenna og tilhlökkun var í loftinu hjá þeim félögum.
Lúxusvandamál við skipun í nefndir
Á fyrsta fundinum var kosið í fastanefndir og ráð bæjarins. Aðspurðir sögðu þeir Vilhjálmur og Gunnlaugur að það ferli hefði gengið vonum framar, enda búi nýi meirihlutinn yfir öflugum hópi fólks.
„Það gekk bara mjög vel. Við búum yfir öflugum hópi fólks með mikla reynslu og þekkingu á sínum málaflokkum, þannig að við vorum í raun með lúxusvandamál þegar kom að því að velja í nefndir,“ segir Vilhjálmur.
Gunnlaugur tekur í sama streng fyrir hönd Miðflokksins, en flokkurinn teflir fram mörgu nýju fólki í bæjarmálin. „Við erum með mikið af óreyndu en rosalega áhugasömu fólki sem er tilbúið að leggja sig fram og skilur þarfirnar í Reykjanesbæ. Það var sami lúxusinn hjá okkur; margir sem hafa áhuga og kraft til að vinna að góðum málum. Það verður enginn skortur á fólki þegar við þurfum að leita út fyrir raðir þeirra sem komust að í þetta skiptið.“
Sumarfríið verður að bíða
Fyrir dyrum stendur mikil vinna og segir Gunnlaugur að málefnaskráin sé þétt. Fyrsti fundur bæjarráðs var á fimmtudaginn í síðustu viku (4. júní) og þar var farið beint í að forgangsraða verkefnum. Fram undan eru meðal annars skipulagsmál og breytingar á nefndakerfi bæjarins.
Vilhjálmur mætti á sinn fyrsta vinnudag í ráðhúsinu strax morguninn eftir bæjarstjórnarfundinn, þar sem fráfarandi bæjarstjóri tók á móti honum. Viðtalið við Vilhjálm var tekið fyrir þá móttöku. „Ég ætla að hitta sviðsstjórana strax og komast inn í málefnin hratt og örugglega. Það er mikilvægt að kynnast starfsfólkinu og þeim öfluga mannauði sem Reykjanesbær býr yfir.“
Spurður út í það hvort nýi bæjarstjórinn fari ekkert í sumarfrí stendur ekki á svörum:
„Nei, sumarfríið verður bara að vera einhvern tímann seinna. Það eru næg verkefni fram undan. Við viljum koma mikilvægum málum strax af stað. Svo styttist í 17. júní og við viljum hafa bæinn okkar fallegan og hátíðlegan. Það er mikið að gerast í atvinnumálunum en það eru líka blikur á lofti, eins og í kringum Hafnargötuna, sem þarf að takast á við strax. Þannig að sumarfríið má bíða.“
Finna jákvæðni í samfélaginu
Bæði Vilhjálmur og Gunnlaugur segjast finna fyrir miklum stuðningi og jákvæðni í samfélaginu eftir undirritun málefnasamningsins. Vilhjálmur hrósar jafnframt minnihlutanum fyrir góð viðhorf.
„Ég finn það á minnihlutanum að þau ætla að vinna vel með okkur og við ætlum að vinna þetta saman. Bæjarbúar eru almennt spenntir fyrir nýrri bæjarstjórn og ég held að það sé að hefjast nýtt sóknarskeið í bæ tækifæranna,“ segir Vilhjálmur að lokum.

