Skora á Reykjanesbæ að vernda Narfakotstún
Hafin er undirskriftasöfnun á vefnum Ísland.is undir yfirskriftinni „Verndum Narfakotstún í Innri-Njarðvík“ þar sem skorað er á Reykjanesbæ að hafna áformum um byggingaráform á svæðinu. Aðstandendur söfnunarinnar benda á að Narfakotstún sé mikilvægur hluti af sögu, landslagi og sérkennum Innri-Njarðvíkur, en svæðið tengir saman náttúru, strandlengju, menningarminjar og byggðarsögu og hefur um árabil verið vinsælt útivistarsvæði fyrir íbúa á öllum aldri. Þá er svæðið einnig nýtt af leik- og grunnskólum til kennslu og útivistar, auk þess sem þar er að finna skráðar fornleifar, votlendiseinkenni og fjölbreytt fuglalíf.
Í kynningu á söfnuninni kemur fram að fyrirhuguð byggingaráform myndu fela í sér jarðrask, aukna umferð, nýja vegi og varanlega breytingu á ásýnd og eðli svæðisins. Telja íbúar að ekki hafi verið sýnt fram á nauðsyn þess að byggja á túninu þegar önnur uppbyggingarsvæði eru til staðar innan sveitarfélagsins. Er því farið fram á að Narfakotstún varðveitist sem sameiginleg auðlind íbúa í stað þess að hverfa undir nýja byggð. Undirskriftasöfnunin á Ísland.is mun standa yfir til 6. júlí næstkomandi og er Jónas Ingi Jónasson ábyrgðarmaður listans.









