Tuttugu nýjar atvinnulóðir auglýstar á Tæknivöllum á Ásbrú
Kadeco, í samvinnu við Reykjanesbæ, hefur auglýst byggingarrétt á tuttugu nýjum lóðum til atvinnustarfsemi á Tæknivöllum á Ásbrú. Svæðið þykir einstaklega spennandi til uppbyggingar á hvers kyns atvinnustarfsemi, enda með aðgengi að sterkum innviðum og staðsett steinsnar frá Keflavíkurflugvelli.
Lóðirnar skiptast í tvo flokka þar sem annars vegar er um að ræða fimmtán lóðir undir almennt atvinnuhúsnæði í stærðunum 2.100 til 7.500 fermetrar. Hins vegar eru fimm lóðir ætlaðar undir lífræna ræktun, til dæmis gróðurhús, og eru þær á bilinu 7.400 til 10.600 fermetrar að stærð.
Nánari upplýsingar og rafrænt umsóknarform er að finna á vef Kadeco.







