Miðvikudagur 10. júní 2026 kl. 13:08

Halldóra Fríða: Munum halda áfram að vinna vel fyrir samfélagið

Framsóknarflokkurinn í Reykjanesbæ mætir fullur sjálfstrausts til leiks í minnihlutanum eftir sögulega góða kosningu. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir oddviti flokksins segir nýja hlutverkið í minnihlutanum spennandi og lofar öflugu en málefnalegu aðhaldi.

Það var létt yfir Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur þegar blaðamaður spjallaði við hana fyrir utan Vatnsnes, þar sem bæjarstjórnin var ljósmynduð í bak og fyrir.

Söguleg kosning Framsóknar

Þótt gamli meirihlutinn hafi ekki haldið fagnar Framsóknarflokkurinn fylgisaukningu. Flokkurinn vann á og fékk rúmlega 26% atkvæða, sem er mesti styrkur sem flokkurinn hefur haft í bænum.

„Við fengum frábæra kosningu og Framsókn hefur aldrei verið eins sterk í Reykjanesbæ og í dag. Við bættum við okkur og fórum úr 22% í rúmlega 26%, sem er stórkostlegt,“ segir Halldóra stolt. „Við erum afskaplega ánægð með kosningabaráttuna. Við spiluðum leikinn eins og við viljum gera, með gleði að vopni. Við höfðum gaman af því og erum stolt af niðurstöðunni.“

Ný reynsla í minnihluta

Aðspurð um hvernig tilfinning það sé að sitja í minnihluta segir Halldóra það leggjast vel í sig.

„Það er bara líka svolítið spennandi. Maður þarf líka að kunna það, þannig að þetta verður ný reynsla fyrir okkur. En við erum að vinna hérna fyrir íbúana; það var einn af hverjum fjórum sem kaus Framsókn og við ætlum að standa okkur fyrir þann fjórðung íbúa. Við munum halda áfram að vinna vel fyrir samfélagið og ætlum ekki að gleyma því í eina sekúndu fyrir hverja við erum að vinna.“

Spurð hvort það verði ekki erfitt að koma sínum málum á framfæri úr minnihlutanum svarar Halldóra ákveðin:

„Ja, eru góð mál ekki bara góð mál?“

Hún bendir á að í sveitar-stjórnum sé jafnan meiri samstaða og samvinna á milli flokka en fólk á að venjast úr landsmálapólitíkinni á Alþingi. „Það hefur verið þannig hingað til og ég vona svo sannarlega að það verði svoleiðis líka hér eftir.“

Setja málefni brottfararstöðvarinnar á oddinn

Þegar talið berst að áherslu-málum nýja meirihlutans segist Halldóra ekki enn þekkja þau í þaula en hún viti nákvæmlega hvar áhyggjur Framsóknar liggi. Hún nefnir sérstaklega málefni brottfararstöðvarinnar [fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd] sem verið hefur til umræðu á Alþingi. „Ég fylgdist með því í gær og þetta mál er á leiðinni. Ég vil allavega vinna að því að við séum að stíga þar fast niður fæti. Svo ætlum við bara að leggja ríka áherslu á þau mál sem við vorum kosin fyrir og koma þeim á framfæri,“ segir Halldóra Fríða að lokum.