Sumarmagasín Víkurfrétta: Þjóðbúningamessa á Vatnsleysuströnd
Sannkölluð hátíðarstemning ríkti í Knarrarneskirkju á kvenréttindadaginn, þann 19. júní síðastliðinn, þegar þar var haldin sérstök þjóðbúningamessa. Knarrarneskirkja er við Minna-Knarrarnes á Vatnsleysuströnd og er heimakirkja sem þau Birgir Þórarinsson og Anna Rut Sverrisdóttir eiga en þau vonast til þess að um árlegan viðburð verði að ræða í framtíðinni.
Í samtali lýsa þau Birgir og Anna Rut því að hugmyndin hafi kviknað í gegnum starf þeirra í Þjóðbúningafélagi Íslands, en stefna félagsins er einmitt að standa fyrir þjóðbúningamessum í hinum ýmsu sveitakirkjum landsins. Fjölmargir félagsmenn mættu til messunnar prúðbúnir í glæsilegum klæðnaði og var hópurinn afar samheldinn, en mörg þeirra fóru saman í eftirminnilega ferð til Kanada á síðasta ári í tilefni af 150 ára afmæli Íslendingadagsins þar.
Anna Rut segir áhuga sinn á þjóðbúningum hafa kviknað á námskeiði hjá Annríki í Hafnarfirði, undir handleiðslu Guðrúnar Þórhildar Rosenkjær. Þar saumaði hún fyrst 19. aldar upphlut á sjálfa sig og í framhaldinu dugaði ekkert minna en að klæða bóndann upp líka, svo hann yrði jafn fínn við hlið hennar.
Það var séra Kristján Valur vígslubiskup, héraðsprestur Knarrarneskirkju, sem sá um messuhaldið og flutti hann frábæra prédikun þar sem fjallað var um þjóðrækni, þjóðbúninga og konur, sem hæfði deginum einstaklega vel.
Að sögn Birgis eru tveir fastir messudagar í Knarrarneskirkju; þjóðbúningamessan á kvenréttindadaginn og svokölluð Nikulásarmessa þann 6. desember. Hann hvetur alla þá sem eiga þjóðbúninga til að mæta í messuna í framtíðinni, „á meðan húsrými leyfir.“

