Heimsþekktir fimleikaþjálfarar stýrðu æfingabúðum í Keflavík
Í byrjun júní stóð Fimleikadeild Keflavíkur fyrir alþjóðlegum æfingabúðum í áhaldafimleikum þar sem 40 stúlkur fengu tækifæri til að æfa undir leiðsögn þjálfara sem starfað hafa með fremsta fimleikafólki heims.
Aðsóknin fór fram úr væntingum og komust færri að en vildu. Flestir þátttakendur voru úr röðum Fimleikadeildar Keflavíkur en einnig tóku stúlkur frá Björk og Stjörnunni þátt í búðunum.
Yfirþjálfari búðanna var Bandaríkjamaðurinn Tony Retrosi sem hefur um áratugaskeið verið meðal þekktustu þjálfara í bandarískum fimleikum og komið að þjálfun fjölmargra afreks iðkenda. Með honum störfuðu þau Jeremy og Kyna Fletcher, sem bæði hafa víðtæka reynslu af þjálfun á alþjóðlegum vettvangi.
Sérstakur gestur búðanna var ítalska landsliðskonan Naomi Panzon sem stefnir á þátttöku á Ólympíuleikunum í Los Angeles árið 2028. Fyrir margar stúlkurnar var það einstakt tækifæri að fá að æfa við hlið íþróttamanns sem keppir á hæsta stigi og ræða við hana um markmiðasetningu, þjálfun og lífið sem afreksíþróttamaður.
Áhersla búðanna var ekki aðeins á tæknilega þjálfun heldur einnig á hugarfar, sjálfstraust og þá vinnu sem liggur að baki árangri í íþróttum. Þjálfararnir hvöttu iðkendur til að takast á við nýjar áskoranir og margir þátttakendur náðu að framkvæma æfingar sem þeir höfðu áður talið sig ekki tilbúna í.
Það var raunar það sem stóð hvað mest upp úr að mati þátttakenda sjálfra. Þegar helgin var gerð upp voru stúlkurnar sammála um að þær hefðu lært mikið, bæði um fimleika og eigin getu. Margar fóru heim með nýja færni í farteskinu en kannski enn mikilvægara með aukið sjálfstraust og trú á að þær gætu meira en þær höfðu haldið.
Viðburðurinn markar ákveðin tímamót fyrir fimleikastarfið í Keflavík. Það er ekki á hverjum degi sem ungar fimleikastelpur á Suðurnesjum fá tækifæri til að æfa með þjálfurum sem hafa starfað með heims- og ólympíumeisturum. Um helgina varð það að veruleika í Keflavík.
Miðað við viðtökurnar er ljóst að áhugi er fyrir hendi og stefnt er að því að gera æfingabúðirnar að árlegum viðburði í starfsemi Fimleikadeildar Keflavíkur, segir í frétt frá deildinni.









