Fréttir

Nýtt 90 rýma hjúkrunarheimili opnar á Ásbrú
Á myndinni sem fylgir fréttinni (frá vinstri til hægri) eru: Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir forstjóri HSS, Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra og Karl Finnbogason eigandi Icelandic Home ehf. (Ljósmynd: Sverrir H. Geirmundsson).
Þriðjudagur 23. júní 2026 kl. 15:08

Nýtt 90 rýma hjúkrunarheimili opnar á Ásbrú

Hjúkrunarrýmum fjölgar um tæp 80% á Suðurnesjum

Gagngerar breytingar eru hafnar á húsnæði við Keilisbraut í Reykjanesbæ þar sem nýtt og glæsilegt hjúkrunarheimili fyrir 90 íbúa verður opnað vorið 2028. Uppbyggingin er liður í stórsókn stjórnvalda í málefnum eldra fólks, en hjúkrunarrýmum á svæðinu mun fjölga um tæp 80% þegar nýja heimilið og nýverið opnað heimili við Nesvelli verða bæði komin í gagnið.

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) mun annast rekstur nýja heimilisins, en ríkið hefur gert 25 ára leigusamning við Icelandic Home ehf. um húsnæðið að Keilisbraut 753 og 754. Heimilið verður ríflega 6.500 fermetrar að stærð og munu allir íbúar hafa sérherbergi með sérbaðherbergi.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Með þessari viðbót fjölgar hjúkrunarrýmum í Reykjanesbæ úr 160 í 250.

Bráðabirgðalausn í haust

Til að brúa bilið fram að opnuninni við Keilisbraut verða 24 skammtímahjúkrunarrými tekin í notkun í haust, þegar hjúkrunarheimilið Hlévangur verður opnað á nýjan leik.

Mikilvæg framför og léttir fyrir heilbrigðiskerfið

Uppbyggingin er hluti af framkvæmdaáætlun stjórnvalda um uppbyggingu hjúkrunarheimila fyrir árin 2026–2030, þar sem stefnt er að því að taka ríflega 1.500 ný rými í notkun á landsvísu.

„Stjórnvöld eru í stórsókn í uppbyggingu hjúkrunarheimila vítt og breitt um landið og nýja hjúkrunarheimilið við Keilisbraut verður mikilvægt framfaraskref fyrir eldra fólk á Suðurnesjum og fjölskyldur þeirra,“ segir Inga Sæland, sem fer fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila.

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra fagnar því sömuleiðis hve hratt hlutirnir gerast og nefnir að þetta skipti sköpum fyrir kerfið allt:

„Þetta er óendanlega mikilvægt, auðvitað fyrst og fremst gagnvart öldruðu fólki í brýnni þörf fyrir slíka búsetu en einnig fyrir heilbrigðiskerfið í heild, ekki síst Landspítala og bráðamóttökuna þar.“

Tækifæri til að efla HSS enn frekar

Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir forstjóri HSS segir stofnunina fagna áfanganum mjög. Aðstaðan á Keilisbraut bjóði upp á marga möguleika til að móta fyrirmyndarsamfélag. „Með opnun nýja hjúkrunarheimilisins á Keilisbraut skapast einstakt tækifæri til að efla sjúkrahússtarfsemi HSS enn frekar og mun það hafa víðtæk áhrif á heilbrigðisþjónustu til framtíðar.“

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar