Brekkusel opnað í 70 ára Sólbrekkuskógi
Nýtt skógarskýli, Brekkusel, var formlega opnað í Sólbrekkuskógi í dag á 70 ára afmæli Sólbrekkuskógar. Bæjarstjórinn, Vilhjálmur Árnason, afhjúpaði skilti með nafni skýlisins. Að því loknu gróðursettu börn nokkrar trjáplöntur og boðið var upp á grillaðar pylsur í tilefni dagsins. Fjölmargir gestir voru viðstaddir, enda Sólbrekkuskógur mikil náttúruperla í útjaðri Reykjanesbæjar.
Nánar verður fjallað um viðburðinn í Víkurfréttum í næstu viku.







