Fréttir

Þröstur Norðurlandameistari í eldsmíði
Vinningshafar á Norðurlandameistarimótinu í eldsmíði 2026: Fv. Beate Stormo, Þröstur Sigmundsson og Guðmundur Sigurðsson.
Laugardagur 20. júní 2026 kl. 11:15

Þröstur Norðurlandameistari í eldsmíði

Þröstur Sigmundsson frá Reykjanesbæ, varð Norðurlandameistari í opnum flokki í eldsmíði sem fram fór dagana 11.-14. Júní  í Tidaholm í Svíþjóð. 

Sex tóku þátt fyrir Íslands hönd, fimm keppendur og einn dómari. Beate Stormo, frá Eyjarfjarðarsveit og Guðmundur Sigurðsson, frá Akranesi, náðu einnig mjög góðum árangri í sínum flokkum og unnu bæði 3. sætið.

Norðurlandameistaramótin í eldsmíði eru haldin til skiptis á Norðurlöndum, annað hvert ár. Síðast var mótið haldið á Íslandi árið 2022, í Danmörku 2024 og nú í Svíþjóð. 

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Almennt um eldsmíði á Íslandi:

Eldsmíði - Lifandi arfur og listform

Eldsmíði á sér djúpar rætur í íslenskri sögu allt frá landnámi. Landnámsmenn komu með þekkingu á járnsmíði sem varð grundvöllur fyrir lífi og samfélagi í nýju landi. Smiðir sköpuðu nauðsynleg verkfæri, hnífa og búnað til daglegs lífs – allt mótað með eldi, járni og handverki.

Í gegnum aldirnar hefur eldsmíði haft nytjahlutverk og verið listform. Hver gripur ber með sér sögu, kunnáttu og fagurfræði sem endurspeglar tengsl manns og náttúru. Smiðurinn var lykilpersóna í samfélaginu – handverksmaður, skapandi listamaður og varðveitandi þekkingar.

Í dag lifir þessi hefð áfram. Nútímasmiðir byggja á aldagamalli tækni en þróa hana áfram í nýja og skapandi átt. Eldsmíðin er því ekki aðeins hluti af fortíðinni – heldur lifandi listform sem tengir saman sögu, menningu og nútímann.

Félag eldsmiða eru starfrækt á öllum Norðurlöndum. Félögin heita: 

Norrænt samstarf fer oft fram í gegnum viðburði og tengslanet handverksfélaga (NNCA) nordiccrafts.net

Félag eldsmiða á Íslandi er með smiðju á Akranesi. Félagið stendur fyrir og tekur þátt í ýmsum viðburðum eins og: 

  • Opnar smiðjur (hammer-in): félagar hittast, smíða saman og læra hver af öðrum.
  • Námskeið og vinnustofur: fyrir byrjendur og lengra komna.
  • Sýnikennsla og uppákomur á söfnum/hátíðum, t.d. tengt víkingahátíðum eða safnadögum.
  • Undirbúningur og þátttaka í Norðurlandameistaramótum.

Hægt er að finna viðburði á vegum íslenskra eldsmiða á Facebook síðu félagsins: „Íslenskir eldsmiðir“.

Íslensku þátttakendurnir á mótinu.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar