Kæri Vilhjálmur bæjarstjóri
Greinin þín, „Rétt skal vera rétt“, sem birtist á vf.is í gær, 18. júní, er hreinasta meistaraverk. Hún sýnir svo um munar hvernig á að stýra umræðunni með hárréttum rökbrellum. Að fylgjast með þér og meirihlutanum svara minnihlutanum á 721. fundi bæjarstjórnar er algjör kennslustund í því hvernig á að sneiða hjá kjarna málsins án þess að svara einni einustu spurningu.
Beinum sjónum að „gegnsæinu“ í staðinn fyrir upphæðina! Það er algjör fásinna hjá minnihlutanum að velta sér upp úr því að heildarlaunin þín — með álagi vegna bæjarfulltrúalauna, tveimur aukafundum á mánuði og stjórnarsetu — slagi í tæpar 3,2 milljónir króna á mánuði. Hvað með það þótt þau séu hærri en laun borgarstjóra og forsætisráðherra? Til hvers að ræða launakjör á erfiðum rekstrartímum þegar við getum frekar rætt hvað þetta er allt saman gegnsætt?
Við skulum frekar hreykja okkur af því að ráðningarsamningurinn við þig hafi verið birtur á netinu — nokkuð sem aldrei hefur verið gert áður! Beinum umræðunni bara að netbirtingunni og þeirri staðreynd að þú sérð að þér að þiggja rúmlega 68 þúsund krónur á fund. Þá gleymir fólk fljótt heildarupphæðinni. Gegnsæið skiptir jú miklu meira máli en hvað fer í raun og veru úr vösum skattgreiðenda.
Hvílík frekja í bæjarfulltrúum Framsóknar og Samfylkingar að ætla að setja út á að þú hafir brotið sveitarstjórnarlög með því að ráða aðstoðarmann á miðju ári, án þess að gera ráð fyrir því í fjárhagsáætlun eða óska eftir viðauka! En þú varst með rétta svarið: Hvað með kennarana?! Auðvitað er það nákvæmlega sami hluturinn að fyrrverandi meirihluti hafi ekki gert viðauka vegna lögboðinna, landlægra kjarasamningshækkana upp á 600 milljónir. Af hverju þarft þú að fylgja formsatriðum og biðja um heimild fyrir pólitískri ráðningu þegar önnur „synd“ getur vegið hina upp? Með þessari tækni þarftu aldrei að rökstyðja hvort þín eigin gjörð sé lögleg.
Kennum þeim um og köllum þau vitlaus. Ef minnihlutinn ætlar ekki að gefast upp er best að saka hann bara um að vera „föst í röngum málflutningi og upplýsingaóreiðu“. Þegar hann kvartar undan formsatriðum við ráðningu aðstoðarmannsins er fullkomið að svara því fljótt og örugglega að hann sé einfaldlega að kvarta undan þeirri vinnumenningu sem hann innleiddi sjálfur síðustu 12 ár. Snúðu vörninni í sókn og segðu að gagnrýnin sýni bara þeirra eigin eitruðu menningu. Til að setja punktinn yfir i-ið getum við svo tekið undir með samflokksmanni þínum og vonað að þetta verði ekki „kjörtímabil gaslýsinga þar sem minnihlutinn er alltaf að misskilja allt“.
Með þessum þremur vopnum — útúrdúrum, fölskum hliðstæðum og persónuárásum — þarft þú aldrei að svara því efnislega hvort brotið hafi verið gegn sveitarstjórnarlögum.
Góðar stundir
Kristinn Þór Jakobsson
fv. bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ









