K Steinarsson 1-15.júní
K Steinarsson 1-15.júní

Aðsent

Neikvæð og fjandsamleg afstaða stjórvalda gagnvart Grindavík
Miðvikudagur 10. júní 2026 kl. 07:30

Neikvæð og fjandsamleg afstaða stjórvalda gagnvart Grindavík

Járngerður, hagsmunasamtök íbúa um framtíð og endurreisn Grindavíkur, tekur undir með nýkjörinni bæjarstjórn Grindavíkur þar sem bæjarstjórn lýsir yfir miklum vonbrigðum með þá neikvæðu og łandsamlegu afstöðu sem stjórnvöld sýna gagnvart skjótri enduruppbyggingu bæjarfélagsins.

Síðasta útspil stjórnvalda, að takmarka gistheimildir í húsnæði Þórkötlu frá og með 1. september, hefur valdið óafturkræfum skaða. Þetta útspil setur áform þeirra fölskyldna sem hugðust snúa heim í sumar til búsetu í uppnám og einhverjar hafa gefist upp.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Grindvíkingar geta ekki beðið eftir því að stjórnvöld taki ákvarðanir byggðar á nýju áhættumati sem stendur til að birta í júlí. Stjórnvöld þurfa að taka ákvörðun núna óháð þessu áhættumati.

Við bendum á að Grindavík er öllum opin og búseta er þar heimil svo fremi sem Almannavarnir loki ekki bænum eða rými hann af völdum aðsteðjandi hættu.

Við skorum á forsætsráðherra, ríkisstjórn og þingmenn að leysa úr þessu máli áður en Alþingi fer í sumarfrí.

Virðingarfyllst,

Stjórn Járngerðar.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar