Fimmtudagur 21. maí 2026 kl. 18:41

Gunnlaugur nýr formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar

„Þetta kom svo sem ekkert á óvart að þetta gengi vel“

Gunnlaugur Kárason, oddviti Miðflokksins, tekur við hlutverki formanns bæjarráðs Reykjanesbæjar í nýja meirihlutanum sem formlega var myndaður í dag með meirihlutasamstarfi og málefnasamningi Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. Hann segir samhljóm flokkanna hafa verið augljósan snemma í kosningabaráttunni og að ekki hafi komið til greina að ræða við fyrri meirihluta Samfylkingar og Framsóknar.

Miðflokkurinn fékk rúmlega 11% atkvæða í kosningunum og myndar nú nýjan meirihluta með Sjálfstæðisflokknum. Gunnlaugur Kárason segist ekki hafa séð þessa niðurstöðu fyrir þegar lagt var af stað, en hann sé fullkomlega tilbúinn í verkefnið.

Aðspurður hvort það hafi komið til greina að bjóða gömlum meirihluta Samfylkingar og Framsóknarflokks „í dans“ til að mynda stjórn, er svarið neitandi.

„Það kom sem sagt ekkert sérstaklega upp í huganum. Það var nokkuð ljóst, held ég, snemma af öllum að við vorum að tala sennilega líkast af öllum, við og Villi [Vilhjálmur Árnason] í Sjálfstæðisflokknum. Þannig að við fórum bara ekki þangað,“ segir Gunnlaugur.

Ekki vaðið yfir Miðflokkinn þrátt fyrir fimm gegn einum

Sjálfstæðisflokkurinn er með fimm fulltrúa í nýja meirihlutanum en Miðflokkurinn einn. Gunnlaugur segir að tekið hafi verið tillit til þess í viðræðunum en samstarfið byggist á jafnræði.

„Við vissum það alveg að þetta væri í ójafnvægi en það er samt ekkert vaðið yfir okkur. Það er bara komist að góðu samkomulagi,“ segir Gunnlaugur og bætir við að hans helsta krafa hafi verið að málefni Miðflokksins fengju pláss í samningnum, sem raunin varð.

Gunnlaugur segist mjög ánægður með málefnasamninginn og nefnir sérstaklega utanumhald um fjölskyldur, ungt fólk og íþróttir. Þá stendur til að taka á hælisleitendamálum og gera breytingar á húsnæðismálum í bænum, en flokkarnir vilja draga úr uppbyggingu fjölbýlishúsa og horfa til annarra hópa.

Fækkun nefnda og hagræðing í stjórnkerfinu

Bæjarbúar mega búast við að sjá breytingar strax í sumar þegar nýi meirihlutinn tekur við völdum þann 2. júní. Stendur meðal annars til að fækka nefndum og stokka upp í stjórnkerfinu.

„Við erum fyrst og fremst að tala um að horfa til þess hvort það sé hægt að gera betur þar. Síðan að horfa til þess hvort það sé hægt að gera betur í framkvæmd; hvort það sé hægt að spara í því hvernig við byggjum nýjar eignir og gera þetta betur fyrir minni fjárhæðir en sömu gæði,“ útskýrir Gunnlaugur.

Hann hlakkar mikið til að taka við formennsku í bæjarráði, sem hann lýsir sem framkvæmda- og fjármálaráði bæjarins þar sem hlutirnir gerast.

„Þetta er ábyrgðarmikið starf og ég tek þetta af mikilli alvöru og auðmýkt. Við brennum báðir [hann og Vilhjálmur] fyrir því að Reykjanesbær gangi vel og verði frábær.“