Besta körfuboltakona landsins úr Keflavík í KR
Sara Rún Hinriksdóttir, besta körfuboltakona Keflavíkur og landsins undanfarin ár hefur gengið til liðs við KR. Vesturbæjarliðið greinir frá því á miðlum sínum.
Sara var í lykilhlutverki hjá Keflavík á síðasta keppnistímabili og stýrði liðinu til sigurs í bikarkeppninni. Þá var hún einnig í lykilhlutverki hjá íslenska landsliðinu.
„Ég féll fyrir því að koma í KR á fyrsta fundi með stjórn og þjálfara. KR er auðvitað risastórt félag og þau hafa lagt mikla áherslu á kvennakörfuna undanfarin ár og það blandað metnaðinum til að vinna titla var eitthvað sem ég sá sjálfa mig strax passa inn í. Ég er mjög spennt að verða partur af þessu samfélagi og vinna að markmiðum félagsins,” segir Sara í tilkynningu KR á samfélagsmiðlum.
Þetta hljóta að vera erfið tíðindi fyrir Keflvíkinga sem hafa ráðið ungan þjálfara til að stýra liðinu á næstu keppnistíð, sem hefði eflaust viljað hafa besta leikmann landsins í liðinu. Orðrómur um þessi vistaskipti Söru heyrðust í vor en hún er flutt búsetum á höfuðborgarsvæðið.









