Kvennakór
Kvennakór

Fréttir

Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi
Enn rís land við Svartsengi.
Þriðjudagur 9. júní 2026 kl. 13:50

Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi

Landris og kvikusöfnun halda áfram við Svartsengi og þróunin mælist áfram stöðug. Nýjustu líkanreikningar benda til þess að rúmmálsbreyting undir Svartsengi frá því um miðjan júlí 2025 samsvari um 27,5 milljónum rúmmetra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

 BAR_8June_2026_IS

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Líkanreikningar benda til þess að rúmmálsbreyting undir Svartsengi frá því um miðjan júlí 2025 samsvari nú um 27,5 milljónum rúmmetra. Matið byggir á GNSS-mælingum og InSAR-gögnum og sýna svörtu línurnar 95% óvissubil.

Jarðskjálftavirkni

Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og í grennd við Grindavík er áfram lítil. Engin marktæk breyting hefur orðið á skjálftavirkninni frá síðustu uppfærslu.

Hættumat

Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt og gildir til 30. júní nema breytingar verði á virkninni. Sólarhringsvakt Veðurstofunnar fylgist áfram grannt með framvindunni.

2026-03-31_haettumatskort_VI

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar