Járngerður í sumarfrí
Nú gerum við sumarhlé á upplýsingafundum Járngerðar.
Við viljum nota tækifærið og þakka ykkur öllum fyrir jákvæð viðbrögð, fyrir að gefa ykkur tíma til að hlusta og fylgjast með því sem hefur verið til umfjöllunar á upplýsingafundunum. Fundirnir hafa verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og samtal á krefjandi tímum fyrir samfélagið okkar.
Við þökkum líka öllum þeim sem gáfu sér tíma til að taka þátt í fundunum í viku hverri. Framlag þessara aðila í umræðum og upplýsingagjöf á fundunum er ómetanlegt.
Við minnum jafnframt á að aðalfundur Járngerðar verður haldinn í Gjánni þriðjudaginn 16. júní kl. 17:30. Við hvetjum félagsmenn til að mæta og jafnframt þá sem hafa áhuga á starfi félagsins að ganga í Járngerði.
Bestu kveðjur,
stjórn Járngerðar.









